Beiðni um undanþágu frá reglum Fjarðabyggðar um útleigu íbúða vegna hunda- og kattahalds.
Mál 1802025 Fyrst á dagskrá 16. febrúar 2018, síðast 6. mars 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Félagsmálanefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 198 liður 3
Lagt fram ódagsett erindi Kristjáns Vilmundarsonar og Helgu Axelsdóttur um undanþágu frá banni við hunda- og kattahaldi í íbúðum Fjarðabyggðar.
Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að sömu reglur gildi í íbúðum Fjarðabyggðar og í fjölbýlishúsum almennt. Samþykki annarra íbúa þurfi að liggja fyrir.
-
Félagsmálanefnd, fundur 106 liður 5
Erindi lagt fram til kynningar. Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að sömu reglur gildi í íbúðum Fjarðabyggðar og í fjölbýlishúsum almennt. Samþykki annarra íbúa þurfi að liggja fyrir. Samþykkt í bæjarstjórn 1.3.2018. Félagsmálanefnd fagnar niðurstöðunni.