Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 556

12. mars 2018, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2017 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1712038 Allur ferill málsins

    Umræða um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana árið 2017.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1705109 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka, launakostnað og framkvæmdir janúar - desember 2017 auk sérstaks málaflokkayfirlits. Einnig lagt fram yfirlit yfir rekstur deilda yfir sama tímabil.

  3. 3. Ársreikningur Uppsala 2017

    Mál 1803058 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri kynnti stöðu ársreikningsgerðar.

    Bæjarráðs samþykkir í ljósi fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilsins Uppsala að Fjarðabyggð tryggi fjárhagslega stöðu og rekstrarhæfi Uppsala á árinu 2018. Fjármálastjóra falið að kynna ársreikning fyrir félagsmálanefnd og vísar reikningnum til afgreiðslu nefndarinnar.

  4. 4. Ársreikningur Hulduhlíðar 2017

    Mál 1803059 Allur ferill málsins

    Umræða um drög að ársreikningi Hulduhlíðar árið 2107.

    Fjármálastjóra falið að kynna ársreikning fyrir félagsmálanefnd og vísar reikningnum til afgreiðslu nefndarinnar.

  5. 5. Atvinnu-og þróunarmál 2018

    Mál 1803049 Allur ferill málsins

    Farið yfir áhersluverkefni í atvinnu- og þróunarmálum.

  6. 6. Beiðni um viðbótarframlag til Héraðsskjalasafns vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð

    Mál 1803045 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Héraðsskjalasafns Austfirðinga þar sem gerð er grein fyrir uppgjöri við Brú lífeyrissjóð vegna viðbótarframlags til sjóðsins. Lögð er fram beiðni um sérstakt fjárframlag til Héraðsskjalasafns Austfirðinga vegna uppgjörsins að fjárhæð 1,3 milljónum kr. Hlutur Fjarðabyggðar nemur 398.955 kr.

    Bæjarráð samþykkir viðbótarframlag til Héraðsskjalasafns Austfirðinga að fjárhæð 398.955. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  7. 7. Háskólasetur Austfjarða

    Mál 1710150 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fjórar fundargerðir stýrihóps auk samnings við Austurbrú og viðauka.

  8. 8. Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 2018

    Mál 1709203 Allur ferill málsins

    Framlögð fyrirspurn Elíasar Jónssonar vegna álagningar gatnagerðargjalda á bílskúr við Stekkjarbrekku á Reyðarfirði. Jafnframt lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa.

    Bæjarráð samþykkir að afslættir sbr. grein 12. í gjaldskrá gatnagerðargjalda taki til þeirra aðila sem byggja eða stækka eignir á áður úthlutum lóðum. Samþykkt þessi gildir fyrir árið 2018 og verður endurskoðuð í nýrri gjaldskrá fyrir árið 2019.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Persónuverndarstefna

    Mál 1803013 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög persónuverndarstefnu ásamt minnisblaði. Persónuverndarstefna er ný og hefur ekki verið sett áður. Henni er ætlað að lýsa áherslum sveitarfélagsins í persónuvernd.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti stefnuna og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  10. 10. Upplýsingaöryggismál - öryggisnefnd og persónuverndarfulltrúi

    Mál 1803051 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um skipan upplýsingaöryggisnefndar og persónuverndarfulltrúa ásamt drögum að erindisbréfi.

    Bæjarráð samþykkir drög erindisbréfs og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar. Jafnframt samþykkir bæjarráð að upplýsingastjóri og nefndarmenn verði skipaðir á næsta fundi bæjarráðs. Þá er bæjarritara falið að hefja viðræður við lögfræðistofur um skipan persónuverndarfulltrúa Fjarðabyggðar.

  11. 11. Endurnýjun samnings um sjónvarpsefni við N4 fyrir árið 2018

    Mál 1803053 Allur ferill málsins

    Framlagður til afgreiðslu drög samnings við N4 um styrk vegna dagskrárgerðar auk minnisblaðs. Framlag til samnings er á fjárhagsáætlun ársins. Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  12. 12. Sameiningarkosningar milli Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar 2018

    Mál 1801182 Allur ferill málsins

    Samkvæmt 46.gr. samþykkta um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar, annast bæjarráð í umboði bæjarstjórnar, gerð kjörskrár, fjallar um athugasemdir við kjörskrár, gerir nauðsynlegar leiðréttingar og afgreiðir ágreiningsmál í samræmi við ákvæði laga um kosningar.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja kjörskrá vegna sameiningakosninga Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps þann 24. mars 2018. Jafnframt veitir bæjarráð bæjarstjóra, fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna sameiningakosninga Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps þann 24. mars 2018. Bæjarstjóri getur ávallt vísað úrskurðum um ágreiningsmál til bæjarráðs.

  13. 13. Útfærsla launaþróunartryggingar fyrir tímabilið 2013-2017

    Mál 1803026 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn vegna ákvæða kjarasamnings samningsaðila innan Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um launaþróunartryggingu áranna 2013 til 2017. Samkomulag er milli aðila um að launatafla starfsmats hjá þessum launþegahópum hækki um 1,4% frá og með 1. janúar 2018. Auk þess taki hækkun launatöflunnar einnig til félagsmanna Sambands stjórnendafélaga og Félags skipstjórnarmanna. Reiknuð hækkun launakostnaðar á árinu 2018 er metin 21.745.904 kr.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að leggja viðauka fyrir bæjarráð til afgreiðslu vegna kostnaðarauka.

  14. 14. Reglur um fjárhagsaðstoð 2018

    Mál 1803010 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað félagsmálastjóra um endurskoðun reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð ásamt uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð. Meðferðarteymi fjölskyldusviðs hefur fjallað um mál þar sem þörf var á fjárhagsaðstoð til fjölskyldna en reglur Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð náðu ekki yfir aðstæður sem þar höfðu skapast. Til að uppfylla markmið fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar leggur félagsmálastjóri til að nýrri grein verði bætt við IV. kafla reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð. Jafnframt var gerð tillaga um breytingu á orðalagi 10. gr. þar sem umsóknir fara nú í gegnum íbúagátt. Þá er grunnfjárhægð uppfærð skv. vísitöluhækkun í 13.gr. Félagsmálanefnd vísar til staðfestingar bæjarráðs breytingum á reglum Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð skv. tillögum félagsmálastjóra á fundi þann 1.mars.

    Bæjarráð samþykkir breytingar á reglunum og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  15. 15. Drög að landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum

    Mál 1803027 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga er varðar drög að landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Stjórn Sambandsins hvetur sveitarfélögin til að kynna sér landsáætlunina og senda umsögn um hana ef tilefni er til.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  16. 16. Aðalfundur Austurbrúar 2018

    Mál 1802123 Allur ferill málsins

    Framlagt ársfundarboð Austurbrúar ses. þar sem ársfundur verður haldinn 20. mars 2018 kl. 10:00 á Hótel Bláfelli, Breiðdalsvík.

    Bæjarráð sækir aðalfundinn. Páli Björgvini Guðmundssyni bæjarstjóra er falið að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  17. 17. Aðalfundur 2018

    Mál 1803044 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Landssambands fiskeldisstöðva en aðalfundur verður haldinn á Grand Hóteli Reykjavík, mánudaginn 19. mars nk. og hefst kl. 9:00. Bæjarráð samþykkir að fela Valgeiri Ægi Ingólfssyni, atvinnu- og þróunarfulltrúa, að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  18. 18. Stjórnarfundur SvAust 2018

    Mál 1803025 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 17.fundargerð stjórnar SvAust frá 28.febrúar 2018.

  19. 19. Aðalfundur lánasjóðs sveitarfélaga 2018

    Mál 1803042 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga en aðalfundur verður haldinn 23.mars nk. kl. 15:00 á Grand Hótel Reykjavík.

    Bæjarráð felur Páli Björgvini Guðmundssyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  20. 20. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 199

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 199 frá 5.mars 2018, lögð fram til kynningar.

  21. 21. Hafnarstjórn - 193

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 193 frá 6.mars 2018, lögð fram til kynningar.

  22. 22. Félagsmálanefnd - 106

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 106 frá 6.mars 2018, lögð fram til kynningar.