Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Útfærsla launaþróunartryggingar fyrir tímabilið 2013-2017

Mál 1803026 Á dagskrá 12. mars 2018. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarráð.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2018

    Bæjarráð, fundur 556 liður 13

    Framlögð gögn vegna ákvæða kjarasamnings samningsaðila innan Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um launaþróunartryggingu áranna 2013 til 2017. Samkomulag er milli aðila um að launatafla starfsmats hjá þessum launþegahópum hækki um 1,4% frá og með 1. janúar 2018. Auk þess taki hækkun launatöflunnar einnig til félagsmanna Sambands stjórnendafélaga og Félags skipstjórnarmanna. Reiknuð hækkun launakostnaðar á árinu 2018 er metin 21.745.904 kr.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að leggja viðauka fyrir bæjarráð til afgreiðslu vegna kostnaðarauka.