Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 107

19. mars 2018, kl. 15:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
  • Heiðar Már Antonsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 560 liður 14

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 107 frá 19.mars 2018, lögð fram til kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Uppsala 2017

    Mál 1803058 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Uppsala fyrir árið 2017 og efnahagsreikningi í lok árs 2017. Einnig lögð fram endurskoðunarskýrsla Deloitte um ársreikninginn. Sigurður endurskoðandi kynnti ársreikninginn. Félagsmálanefnd staðfestir ársreikning Uppsala fyrir árið 2017.

  2. 2. Ársreikningur Hulduhlíðar 2017

    Mál 1803059 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Hulduhlíðar fyrir árið 2017 og efnahagsreikningi í lok árs 2017. Einnig lögð fram endurskoðunarskýrsla Deloitte um ársreikninginn. Sigurður endurskoðandi kynnti ársreikninginn. Félagsmálanefnd staðfestir ársreikning Hulduhlíðar fyrir árið 2017.

  3. 3. Rekstur Uppsala til framtíðar

    Mál 1803070 Allur ferill málsins

    Rætt var um rekstrarhæfi heimilisins. Nauðsynlegt er að bregðast við rekstrarvanda heimilisins til lengri tíma. Félagsmálanefnd felur framkvæmdaráði hjúkrunarheimilanna í samstarfi við framkvæmdastjóra hjúkrunarheimilanna og félagsmálastjóra að gera þarfagreiningu og vinna að fjölgun hjúkrunarrýma á kostnað dvalarrýma.

  4. 4. 178.mál til umsagnar frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum),

    Mál 1803063 Allur ferill málsins

    Framlagt er frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum) til umsagnar félagsmálanefndar. Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið.