Bæjarráð, fundur 560
26. mars 2018, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Makaskipti lands í botni Norðfjarðar
Mál 1802160 Allur ferill málsins
Málið var áður á dagskrá bæjarráðs 26. febrúar sl. þar sem bæjarstjóra var falið að ganga til samningaviðræðna við landeiganda Ormsstaða.
Lögð fram til umræðu og samþykktar drög að samningi og málsettir uppdrættir af landi sem er makaskipt úr jörðunum Búlandsborgum og Ormsstöðum.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Samþykki er háð heimild Landbúnaðarráðuneytisins.
-
2. 200.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga
Mál 1803067 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað vegna tillögu umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis til þingsályktunar um skiptingu útvarstekna milli sveitarfélaga.
Bæjarráð setur fyrirvara við framlagt frumvarp enda óljóst hver tilgangur þess er og hvernig því verður fylgt eftir. Bæjarstjóra falið að senda inn umsögn í samræmi við tillögu í minnisblaði.
-
3. Forsendubrestur í uppbyggingu hesthúsahverfis við Símonartún
Mál 1704104 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til bæjarráðs.
Fjallað um framtíð hesthúsahverfisins á Símonartúni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi viðræður við eigendur hesthúss á Símonartúni.
-
4. Styrkbeiðni vegna Verðlaunahátíðar barnanna
Mál 1803141 Allur ferill málsins
Framlagt erindi verkefnastjóra Verðlaunahátíðar barnanna, Sögur um samtök um barnamenningu, þar sem óska er eftir styrk vegna verðlaunahátíðar barnanna.
Bæjarráð vísar erindi til fræðslustjóra og forstöðumanns Menningarstofu Fjarðabyggðar.
-
5. Aðalfundur Austurbrúar 2018
Mál 1802123 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar ársskýrsla og ársreikningur Austurbrúar vegna ársins 2017.
-
6. Upplýsingaöryggismál - öryggisnefnd og persónuverndarfulltrúi
Mál 1803051 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til bæjarráðs skipan upplýsingaöryggisnefndar.
Bæjarráð samþykkir að bæjarritari skipi stöðu upplýsingatæknistjóra. Jafnframt skipi nefndina fræðslustjóri, félagsmálastjóri og forstöðumaður stjórnsýslu. Skipan persónuverndarfulltrúa verður tekin fyrir síðar.
-
7. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2018
Mál 1803142 Allur ferill málsins
Stefna samtaka sjávarútvegssveitarfélaga í fiskeldi og aðgerðaáætlun lögð fram til umsagnar. Auk þess lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 16.mars og 23.mars sl.
Bæjarráði hefur ekki athugasemdir við framlagðar stefnur.
-
8. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018
Mál 1802079 Allur ferill málsins
Fundargerð 140.fundar heilbrigðisnefndar Austurlands, lögð fram til kynningar.
-
9. 389.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála,
Mál 1803127 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála. Frestur til umsagnar er til 5.apríl nk.
Bæjarritara falið að fara yfir breytingarnar.
-
10. Olíuleit
Mál 1708050 Allur ferill málsins
Eydís Ásbjörnsdóttir fulltrúi Fjarðalistans óskar eftir upplýsingum á útlögðum og sundurliðuðum kostnaði bæjar- og hafnarsjóðs á liðnum, þjónusta við olíuleit á Drekasvæði.
Vísað til fjármálastjóra.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 200
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 200 frá 19.mars 2018, lögð fram til kynningar.
-
12. Hafnarstjórn - 194
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 194 frá 20.mars 2018, lögð fram til kynningar.
-
13. Fræðslunefnd - 53
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 53 frá 21.mars 2018, lögð fram til kynningar.
-
14. Félagsmálanefnd - 107
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 107 frá 19.mars 2018, lögð fram til kynningar.
-
15. Barnaverndarfundagerðir 2018
Mál 1801097 Allur ferill málsins
Fundargerð barnanverndarnefndar, nr. 82 frá 22.mars 2018, lögð fram til kynningar.