Makaskipti lands í botni Norðfjarðar
Mál 1802160 Fyrst á dagskrá 26. febrúar 2018, síðast 26. mars 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Bæjarráð, fundur 554 liður 13
Framlagt erindi Jóns Þórs Aðalsteinssonar eiganda Ormsstaða þar sem boðin eru makaskipti lands Ormsstaða gegn landi úr Borgum á Norðfirði.
Bæjarstjóra falið að ganga til samningaviðræðna um makaskipti lands.
-
Bæjarráð, fundur 560 liður 1
Málið var áður á dagskrá bæjarráðs 26. febrúar sl. þar sem bæjarstjóra var falið að ganga til samningaviðræðna við landeiganda Ormsstaða.
Lögð fram til umræðu og samþykktar drög að samningi og málsettir uppdrættir af landi sem er makaskipt úr jörðunum Búlandsborgum og Ormsstöðum.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Samþykki er háð heimild Landbúnaðarráðuneytisins.