Bæjarráð, fundur 561
9. apríl 2018, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 243 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson,Sævar Guðjónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 9.apríl sl.staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Nýjar persónuverndarreglur 2018
Mál 1612047 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um kostnað sveitarfélaga af innleiðingu á nýjum lögum um persónuvernd.
-
2. Sveitastjórnarkosningar 2018
Mál 1801173 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um kosningavitann sem er aðlögun upplýsingavefsins "ég kýs" að sveitarstjórnarstiginu. Kostnaður nemur 500.000 kr.
Bæjarráð tekur ekki þátt í kosningavitanum vegna sveitarstjórnakosninga 2018 sökum kostnaðar.
-
3. Samningur um rekstur tjaldsvæða í Fjarðabyggð
Mál 1803041 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi við Landmerki ehf. og Fjallmann-solution ehf. á rekstri fimm tjaldsvæða í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
4. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns 2017
Mál 1803157 Allur ferill málsins
Framlagður ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2017.
Bæjarráð samþykkir ársreikning og staðfestir hann með áritun sinni.
-
5. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2017
Mál 1803156 Allur ferill málsins
Framlagður ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2017.
Bæjarráð samþykkir ársreikning og staðfestir hann með áritun sinni.
-
6. Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 2017
Mál 1803155 Allur ferill málsins
Framlagður ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2017.
Bæjarráð samþykkir ársreikning og staðfestir hann með áritun sinni.
-
7. Olíuleit
Mál 1708050 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar svar fjármálastjóra við fyrirspurn um kostnað sveitarfélagsins við þjónustu við olíuleit.
-
8. Fyrirspurn varðandi urðun á plasti og sorpi á árunum 2017 og 2018
Mál 1803161 Allur ferill málsins
Framlögð fyrirspurn Agnars Bóassonar er varðar urðun á plasti og sorpi á árunum 2017 og 2018.
Bæjarráð þakkar bréfi og vísar fyrirspurn til sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs. Tekið fyrir í bæjarráði að nýju þegar svar við fyrirspurn liggi fyrir. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
9. Kaup á fasteignum á Eskifirði vegna frummats ofanflóðavarna.
Mál 1707111 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu matsgerðum vegna uppkaupa á húseignum að Kirkjustíg 3B og 7 á Eskifirði í tengslum við ofanflóðavarna í Lambeyrará. Matsgerðir unnar af Hilmari Gunnlaugssyni lögmanni og Níelsi Indriðasyni verkfræðingi.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við Ofanflóðasjóð að eignir verði keyptar upp sem hluti að ofanflóðaframkvæmdum við Lambeyrará.
-
10. Umsókn um styrk til greiðslu á fasteignaskatti 2018
Mál 1803165 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn Listasmiðju Norðfjarðar um styrkveitingu til greiðslu fasteiganskatts árið 2018 vegna Þiljuvalla 11 í Neskaupstað, sbr. 4. gr. reglna um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts. Styrkbeiðni er að fjárhæð kr. 329.010,-.
Bæjarráð samþykkir að veita Listasmiðju Norðfjarðar styrk til greiðslu fasteignaskatts árið 2018. Samþykkt á grundvelli 4. gr. reglna Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignagjalda.
-
11. Þórsmörk - leigusamningur
Mál 1711182 Allur ferill málsins
Framlögð drög leigusamnings um aðstöðu Menningarstofu Fjarðabyggðar í Þórsmörk í Neskaupstað ásamt drögum að yfirlýsingu.
Bæjarráð samþykkir leigusamning og yfirlýsingu og felur bæjarstjóra undirritun samnings.
-
12. Ósk Umboðsmans Alþingis um yfirlit yfir ráðningar í stjónunarstörf á árunum 2015,2016 og 2017
Mál 1803126 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi Umboðsmanns Alþingis þar sem óskað er eftir upplýsinga um þau stjórnunarstörf sem sveitarfélagið hefur ráðið í á árunum 2015, 2016 og 2017. Um er að ræða frumkvæðisathugun Umboðsmanns.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi Umboðsmanns Alþingis.
-
13. 394. mál - umsögn um frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði
Mál 1803160 Allur ferill málsins
Framlagt til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði. Umsögn berist eigi síðar en 13. apríl.
-
14. 345. mál - Frumvarp til laga um lögheimili og aðsetur
Mál 1803151 Allur ferill málsins
Framlagt til umsagnar frumvarp til laga um lögheimili og aðsetur, 345. mál. Umsagnarfrestur er til 12. apríl nk.
Bæjarráð vísar til fyrri umsagnar um frumvarpið.
-
15. Opinn fundur um fiskeldisstefnu
Mál 1804041 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar fundarboð Samtaka sjávarútvegsfélaga þar sem haldinn er opinn fundur um fiskeldisstefnu samtakanna föstudaginn 27. apríl nk. í Íslenska sjávarklasanum kl. 13:00.
Bæjarstjóri ásamt fulltrúum bæjarráðs munu sækja ráðstefnu. Vísað til hafnarstjórnar og eigna-, skipulags og umhverfisnefndar til kynningar.
-
16. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2018
Mál 1804042 Allur ferill málsins
Framlög til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 27. mars 2018. 1. fundurstjórnar á árinu 2018.
-
17. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2018
Mál 1802007 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 858 frá 23.mars sl.
-
18. Menningar- og safnanefnd - 40
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 27. mars framlögð til kynningar
- 18.9 Listaverkaráð 2018
-
19. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 201
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 3. apríl lögð fram til kynningar.
-
20. Hafnarstjórn - 195
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. apríl s.l. lögð fram til kynningar.
-
21. Stjórn til undirbúnings sameiningar sveitarfélaga - 1
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna.