Hafnarstjórn, fundur 195
3. apríl 2018, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Hákon Ásgrímsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 561 liður 20
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. apríl s.l. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 243 liður 4
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Sævar Guðjónsson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4.apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Persónuverndarstefna
Mál 1803013 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn hefur vísað persónuverndarstefnu til kynningar í nefndum sveitarfélagsins.
-
2. Styrkumsókn v. sjávarútvegsskólans 2018
Mál 1803124 Allur ferill málsins
Erindi frá Háskólanum á Akureyri dags. 19. mars 2018 þar sem óskað er eftir styrk frá Fjarðabyggðarhöfnum vegna Sjávarútvegsskólans 2018 að fjárhæð 500.000 kr. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Sjávarútvegsskólan 2018 um 500.000 kr.
-
3. Umsókn um styrk vegna franskra daga 2018
Mál 1803152 Allur ferill málsins
Hafnarsjóði Fjarðabyggðar hefur borist beiðni um styrk vegna franskra daga á Fáskrúðsfirði árið 2018. Hafnarstjórn frestar afgreiðslu erindis til næsta fundar.
-
4. Ársreikningur Fjarðabyggðahafna 2017
Mál 1803158 Allur ferill málsins
Ársreikingur Hafnarsjóðs fyrir árið 2017 lagður fram til kynningar.
-
5. 735 Aðstöðuhús fyrir ferðamenn Eskifirði
Mál 1803123 Allur ferill málsins
Kynnt drög að teikningu fyrir aðstöðuhús sem staðsett yrði við Gömlubúð. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ræða við hönnuð um útfærslu húss.
-
6. Grjótvarnir í Fjarðabyggð
Mál 1503195 Allur ferill málsins
Kostnaður við grjótvarnir í Fjarðabyggð stefnir í að vera hærri en áætlað var í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018. Hafnarstjórn leggur til að færa fjármuni frá áætluðum fjárfestingum við Mjóeyrarhöfn og Neskaupstaðarhöfn til að mæta aukinni þörf fyrir fjárfestingu í grjötvörnum.
-
7. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna
Mál 1603089 Allur ferill málsins
Skipulags- og byggingafulltrúi Fjarðabyggðar hefur sent til til umsagnar á kynningartíma breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi Leiru 1. Aðalskipulagsbreytingin nær til þéttbýlisuppdráttar fyrir Eskifjörð. Gert er ráð fyrir að hafnarsvæði og iðnaðarsvæði verði stækkað með landfyllingu og nýjum hafnarkanti. Nánari landnotkun á stækkuðu hafnarsvæði er útfærð í endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið, Leiru 1. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að koma athugasemdum á framfæri við skipulagsfulltrúa.
-
8. Ný reglugerð um varnir gegn olíumengun á landi
Mál 1804003 Allur ferill málsins
Erindi hefur borist frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands varðandi olíutanka á höfnum og eftirlit með þeim skv. reglugerð 884/2017 sem tók gildi seint á síðasta ári. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að svara erindinu og vinna áfram með heilbrigðiseftiriti í samræmi við umræður á fundinum.