Hafnarstjórn, fundur 196
17. apríl 2018, kl. 16:30 til 17:55, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Hákon Ásgrímsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 562 liður 32
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 196 frá 17.apríl 2018, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 243 liður 5
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 17.apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Opinn fundur um fiskeldisstefnu
-
2. Umsókn um styrk vegna franskra daga 2018
Mál 1803152 Allur ferill málsins
Hafnarsjóði Fjarðabyggðar hefur borist beiðni um styrk vegna franskra daga á Fáskrúðsfirði árið 2018. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að gera tillögur að úthlutunarreglum fyrir styrki frá hafnarsjóði og samræmingu við styrkveitingar hjá bæjarfélaginu.
-
3. Styrkbeiðni vegna 90 ára afmælis Súlunnar
Mál 1804036 Allur ferill málsins
Erindi hefur borist frá ungmennafélaginu Súlunni á Stöðvarfirði þar sem óskað er eftir fjárstyrk frá hafnarstjórn vegna afnælis- og bæjarhátíðar í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að gera tillögur að úthlutunarreglum fyrir styrki frá hafnarsjóði og samræmingu við styrkveitingar hjá bæjarfélaginu.
-
4. Endurbygging/endurnýjun stálþila vegna tæringar
Mál 1710016 Allur ferill málsins
Siglingasvið Vegagerðarinnar hefur sett saman minnisblað um þörf fyrir endurnýjun á stálþilum í höfnum Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
-
5. Smábátahöfn Stöðvarfirði - stækkun
Mál 1704061 Allur ferill málsins
Siglingasvið Vegagerðarinnar hefur unnið drög að tillögu fyrir stækkun hafnarinnar á Stöðvarfiði. Hafnarstjórn er nokkuð sátt við þau drög sem unnin hafa verið og vísar málinu til fjárhagsáætlunar.
-
6. Heimsókn til Faxaflóahafna
Mál 1804088 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri hafna ásamt formanni hafnarstjórnar og sviðstjóra framkvæmdasviðs fóru í heimsókn til Faxaflóðahafna og Siglingasviðs Vegagerðarinnar. Á fundinum var farið yfir niðurstöður ferðarinnar.