Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 197

4. maí 2018, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 245 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 740 Deiliskipulag Naust 1 - beiðni um stækkun lóðar Landanaust 3

    Mál 1805043 Allur ferill málsins

    Lóðarhafi sækir um stækkun á lóð við Landanaust 3 á Neskaupstað, breyttri aðkomu, lægra nýtingarhlutfalli og breytingu á nafni götunnar. Hafnarstjórn beinir því til Eigna- skipulags- og umhverfisnefndar að tryggja aðkomu að hafnarkanti og að lóð norðaustan við fyrirhugaða byggingu.

  2. 2. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2018

    Mál 1801005 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Hafnasambands Íslands númer 402 og 403 lagðar fram til kynningar.

  3. 3. Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2017

    Mál 1804080 Allur ferill málsins

    Hafnarsamband Íslands hefur sent út til kynningar ársreikning sambandsins fyrir árið 2017. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við ársreikninginn.

  4. 4. Samstarfsyfirlýsing um framkvæmd vigtarmála

    Mál 1805033 Allur ferill málsins

    Hafnarsamband Íslands hefur sent á aðildarhafnir sínar drög að samstarfsyfirlýsingu mill Hafnasambandsins og Fiskistofu um framkvæmd vigtarmála.

  5. 5. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu

    Mál 1804141 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskip hf dagsett 26.4 þar sem óskeð er eftir undánþágu fyrr Bren Oleh skipstjóra á Samskip Hoffell til og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Bren Oleh skipstkjóra á Samskip Hoffell.

  6. 6. Beiðni um efnistöku í námu við Mjóeyrarhöfn til að verja eign ágangi sjávar

    Mál 1805002 Allur ferill málsins

    Beiðni hefur borist frá Inga Lár Vilbergssyni um að fá grjót og annað jarðefni frá námu Fjarðabyggðahafna við Mjóeyrarhöfn. Efnið hyggst hann nota til að verja húseignina Klöpp í Reyðarfirði fyrir ágangi sjávar. Hafnarstjórn tekur vel í erindið en felur framkvæmdastjóra að ræða við lóðarhafa um útfærslu.

  7. 7. Seatrade Cruise Med fundur í Lissabon 19-20. september 2018

    Mál 1804147 Allur ferill málsins

    Ráðstefnan Seatrade Cruise med verður haldin í Lisbon 19. - 20. september 2018. Hafnarstjórn samþykkir þátttöku í ráðstefnunni.

  8. 8. 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði

    Mál 1701099 Allur ferill málsins

    Kynningartíma fyrir auglýsingu aðalskipulags fyrir hafnarsvæði á Eskifirði er lokið.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur vísað ábendingum um nýtingu hafnarsvæðis og dýpt við viðlegukant til umsagnar Hafnarstjórnar. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að koma ábendingum stjórnarinnar áfram til skipulagsfulltrúa.