Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 245

17. maí 2018, kl. 16:00 til 16:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Bæjarráð - 564

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:02:48

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Rekstur málaflokka 2018 - TRÚNAÐARMÁL
    2. 1.2 Sveitarstjórnarkosningar 2018
    3. 1.3 Nýtt hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð0:02:48
    4. 1.4 Upplýsingaöryggismál - öryggisnefnd og persónuverndarfulltrúi0:04:12
    5. 1.5 Upplýsingar um áfengisútsölur og sölu á áfengi
    6. 1.6 Svæðisskipulag fyrir Austurland
    7. 1.7 750 Hlíðargata 8 - umsókn um rekstrarleyfi
    8. 1.8 Bleiksárhlíð 56 - sala (gamla Hulduhlíð)
    9. 1.9 Ísland 2020 atvinnuhættir og menning
    10. 1.10 Sumarlokun bæjarskrifstofu 2018
    11. 1.11 Sjúkraflutningar í Breiðdal og á Djúpavogi0:04:40
    12. 1.12 Endurskoðun fjallskilasamþykktar Múlasýslna
    13. 1.13 Landsþing Sambandsins 26.-28. september 2018
    14. 1.14 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018
    15. 1.15 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2018
    16. 1.16 Aðalfundur Loðnuvinnslunar 15.maí 20180:05:08
    17. 1.17 Fræðslunefnd - 55
    18. 1.18 Menningar- og safnanefnd - 41
    19. 1.19 Hafnarstjórn - 197
    20. 1.20 Félagsmálanefnd - 109
    21. 1.21 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 203
    22. 1.22 Stjórn til undirbúnings sameiningar sveitarfélaga - 3
  2. 2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 203

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla1606146
    2. 2.2 Nýting vatns úr borholu við Sléttu1803148
    3. 2.3 Tillaga að sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar árið 2018.1606124
    4. 2.4 Refa- og minkaveiði 20181801098
    5. 2.5 Meindýraeyðing í Nípunni1805032
    6. 2.6 Veraldavinir 20181801088
    7. 2.7 Eignarsjóður viðhaldsmál 20181801172
    8. 2.8 Samsetningarsvæði sjókvía1804074
    9. 2.9 730 Stekkjarholt 6 - Byggingarleyfi, einbýlishús1804156
    10. 2.10 Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði1708088
    11. 2.11 Verkefnislýsing fyrir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 - 20281805012
    12. 2.12 740 Hafnarbraut 32 - Sameining lóða og niðurfelling á fastanúmeri1805025
    13. 2.13 Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030, umsögn1701199
    14. 2.14 Leyfi til að setja Ærslabelg á Eskjutúnið1802161
    15. 2.15 740 Urðarteigur 22 - Óleyfisframkvæmdir1804093
    16. 2.16 740 Gilsbakki 10 - Byggingarleyfi - Stækkun íbúðarhluta með lokun bílskýlis1804140
    17. 2.17 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði1703117
    18. 2.18 740 Deiliskipulag Naust 1 - beiðni um stækkun lóðar Landanaust 31805043
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 204

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:07:28

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 17. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 740 Deiliskipulag Naust 1 - beiðni um stækkun lóðar Landanaust 318050430:07:56
    2. 3.2 740 Landanaust 3 - byggingarleyfi, netagerð1805092
    3. 3.3 740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð17111630:08:52
  4. 4. Hafnarstjórn - 197

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 740 Deiliskipulag Naust 1 - beiðni um stækkun lóðar Landanaust 31805043
    2. 4.2 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20181801005
    3. 4.3 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20171804080
    4. 4.4 Samstarfsyfirlýsing um framkvæmd vigtarmála1805033
    5. 4.5 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu1804141
    6. 4.6 Beiðni um efnistöku í námu við Mjóeyrarhöfn til að verja eign ágangi sjávar1805002
    7. 4.7 Seatrade Cruise Med fundur í Lissabon 19-20. september 20181804147
    8. 4.8 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði1701099
  5. 5. Menningar- og safnanefnd - 41

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:09:20

    Til máls tók Dýrunn Pála Skaftadóttir.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 9. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 17. júní 20180:10:16
    2. 5.2 Viðurkennd söfn
    3. 5.3 Varðveisla myndefnis Sigmars Ólasonar
    4. 5.4 Skilti við Barkinn - Reyðarfirði
    5. 5.5 Upplýsingaskilti við minnisvarða um franska fiskimenn við Íslandsstrendur
    6. 5.6 Persónuverndarstefna
  6. 6. Fræðslunefnd - 55

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 9. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu 20181804120
    2. 6.2 Skýrsla um aðlögun, stöðu og viðhorf innflytjenda á Austurlandi1804154
    3. 6.3 Reglur um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi í Fjarðabyggð1804078
    4. 6.4 Sameining skóla í Breiðdal og á Stöðvarfirð vegna sameiningar sveitarfélaga.1805016
  7. 7. Félagsmálanefnd - 109

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:11:40

    Til máls tók Hulda Sigrún Guðmundsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 8. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Félagsstarf 201818041340:11:40
    2. 7.2 Sérstakt búsetuúrræði1801106
    3. 7.3 Öryggisstefna1803011
    4. 7.4 Útvistunarstefna1803012
    5. 7.5 Persónuverndarstefna1803013
    6. 7.6 Fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu 20181804120
    7. 7.7 Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 201111090950:12:08
  8. 8. Stjórn til undirbúnings sameiningar sveitarfélaga - 3

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:12:36

    Fundargerðir stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson

    Fundargerð stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaga frá 3. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

  9. 9. Stjórn til undirbúnings sameiningar sveitarfélaga - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaga frá 15. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

  10. 10. Sveitarstjórnarkosningar 2018

    Mál 1801173 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:06:04

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir kjörskrárstofni og umboði til bæjarstjóra.

    Bæjarráð fól bæjarstjóra á fundi sínum 23. apríl sl. að semja kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 26. maí 2018. Jafnframt veitti bæjarráð bæjarstjóra, fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að vera gerðar fram að kjördegi.

    Bæjarstjóri getur ávallt vísað úrskurðum um ágreiningsmál til bæjarráðs. Kjörskrárstofn Fjarðabyggðar er sem hér segir:

    Mjóifjörður - 13

    Neskaupstaður - 1.094

    Eskifjörður - 720

    Reyðarfjörður - 838

    Fáskrúðsfjörður - 500

    Stöðvarfjörður - 150

    Breiðdalur - 149

    Samtals - 3.464

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum kjörskrárstofn Fjarðabyggðar og umboð bæjarstjóra.

  11. 11. Sameining skóla í Breiðdal og á Stöðvarfirð vegna sameiningar sveitarfélaga.

    Mál 1805016 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:16:20

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu um sameiningu skóla.

    Vísað frá stjórn til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna tillögu um að Grunnskólinn í Breiðdal og leikskólinn Ástún á Breiðdalsvík verði sameinaðir Stöðvarfjarðarskóla með nýju nafni frá og með 1. ágúst 2018. Skólinn mun heita Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli. Stjórnin leggur til að tvær leikskóladeildir verði við nýjan skóla, önnur á Breiðdalsvík og hin á Stöðvarfirði. Þá leggur stjórnin til að nemendum í 1.-10. bekk nýs skóla verði kennt tvo daga í viku á Breiðdalsvík og tvo daga í viku á Stöðvarfirði. Einn dag vikunnar, á föstudegi, verði nemendum búsettum á Stöðvarfirði kennt á Stöðvarfirði og nemendum búsettum í Breiðdal/Breiðdalsvík kennt á Breiðdalsvík. Stjórnin leggur til að skólaakstur milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar verði falin SvAust. Þá leggur stjórnin til að sumarið 2018 verði nýtt til þess að gera breytingar á núverandi skólahúsnæði Grunnskóla Breiðdalshrepps sem og skólalóð, þannig að leikskóladeildin á Breiðdalsvík geti tekið til starfa í nýrri aðstöðu á árinu 2018. Skal haft samráð við starfsfólk um breytingarnar.

    Til máls tók Elvar Jónsson.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna

  12. 12. Sameining skóla í Breiðdal og á Stöðvarfirð vegna sameiningar sveitarfélaga.

    Mál 1805016 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:19:36

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu um stjórnun nýs sameinaðs skóla.

    Vísað frá stjórn til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna tillögu um stjórnun Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla. Stjórnin leggur til við sveitarstjórnir Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar að stjórnun nýs skóla, sem til verður við sameiningu Stöðvarfjarðarskóla, Grunnskólans í Breiðdal og leikskólans Ástúns, verði með eftirfarandi hætti. Núverandi skólastjórum Stöðvarfjarðarskóla og Grunnskólans í Breiðdal verði boðnar stöður skólastjóra og aðstoðarskólastjóra við nýjan skóla. Stjórnin leggur til að fræðslustjóra verði falið að ganga frá ráðningu í störf skólastjórnenda. Staða deildarstjóra í leikskólanum Ástúni á Breiðdalsvík verði auglýst laus til umsóknar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna um stjórnun nýs skóla.