Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Leyfi til að setja Ærslabelg á Eskjutúnið

Mál 1802161 Fyrst á dagskrá 19. mars 2018, síðast 17. maí 2018. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 200 liður 8

    Lögð fram beiðni Íbúasamtak Eskifjarðar um að setja ærslabelg á "Eskjutúnið", dagsett 25. febrúar 2018. Jafnframt er óskað eftir að Fjarðabyggð komi að uppsetningu belgsins og frágangi á rafmagni.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við bréfritara þar sem unnið er að skipulagi miðbæjarsvæðisins á Eskifirði.

  2. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 203 liður 14

    Lögð fram að nýju beiðni Íbúasamtaka Eskifjarðar um að setja ærslabelg á "Eskjutúnið", dagsett 25. febrúar 2018, þar sem upphaflegri staðsetningu er breytt lítillega. Jafnframt er óskað eftir að Fjarðabyggð komi að uppsetningu belgsins og frágangi á rafmagni.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir staðsetningu ærslabelgs á túninu. Nefndin felur sviðstjóra framkvæmd- og umhverfissviðs að ræða aðkomu sveitarfélagsins að málinu.

  3. Bæjarstjórn, fundur 245 liður 2.14

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 203“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is