Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 204

17. maí 2018, kl. 15:15 til 15:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 245 liður 3

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 17. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 740 Deiliskipulag Naust 1 - beiðni um stækkun lóðar Landanaust 3

    Mál 1805043 Allur ferill málsins

    Lagt fram að nýju bréf Björns Sveinssonar hjá Verkís fh. Fjarðanets hf, dagsett 6. maí 2018, þar sem óskað er eftir að deiliskipulagi Naust 1 verði breytt vegna fyrirhugaðra byggingaráætlana fyrirtækisins að Landanaust 3 á Norðfirði. Umsögn hafnarstjórnar vegna málsins liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni í samræmi við óskir Fjarðanets hf að undanskilinni beiðni um breytingu á nafni götunnar Landanaustar.

  2. 2. 740 Landanaust 3 - byggingarleyfi, netagerð

    Mál 1805092 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fasteignafélagsins Miðhúss ehf, dagsett 17. maí 2018, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 2.702m2 og 50.197m3 atvinnuhúsnæði á byggingarlóð Fjarðanets hf að Landanaust 3 á Norðfirði. Aðalhönnuður er Björn Sveinsson.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.

  3. 3. 740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð

    Mál 1711163 Allur ferill málsins

    Staða málsins kynnt. Spilda var tekin úr ábúð með bréfi 27. febrúar sl. Viðræður hafa verið í gangi um lausn. Staða þeirra kynnt.

    Bæjarstjóra heimilað að gera sátt í málinu, komi sú staða upp að viðunandi lausn náist.