NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 205
28. maí 2018, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 566 liður 12
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 205 frá 28.maí 2018, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 246 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 205 frá 28.maí 2018, utan 18.liðar, samþykkt með 9 atkvæðum.
Forseti vék af fundi undir 18.lið fundargerðar, efnistaka úr Norðfjarðará, en liðurinn var tekinn sérstaklega til afgreiðslu.
Einar Már Sigurðarson aldursforseti tók við stjórn fundarins og bar 18.lið í fundargerð undir atkvæði.
18.liður í fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 205 frá 28.maí 2018, samþykktur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Veittur styrkur til viðgerðar á Lúðvíkshúsi
Mál 1401003 Allur ferill málsins
Vinna við að flytja Lúðvíkshúsið á lóðina við Þiljuvelli 13 er hafin. þeir sem koma að verkefninu eru Fjarðabyggð, Áhugamannafélagið um gamla Lúðvíkshúsið ásamt fleirum. Sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.
-
2. Úttekt og aðgerðir á söfnunar- og móttökustöðum í Fjarðabyggð
Mál 1801142 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar seinni úttekt á söfnunar- og móttökustöðum í Fjarðabyggð ásamt minnisblaði verkefnastjóra umhverfismála dagsettu 23. maí 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar úttektinni til áframhaldandi vinnslu hjá verkefnastjóra umhverfismála í samráði við bæjarstjóra.
-
3. Varðar umsókn um minkaleitir 2018
Mál 1805093 Allur ferill málsins
Erindi Boða Stefánssonar tekið fyrir og felur nefndin umhverfisstjóra að gera samantekt á minkaveiði í sveitarfélaginu og koma með tillögur að vinnufyrirkomulagi í átaki til útrýmingar á mink í Fjarðabyggð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að svara erindinu.
-
4. Eyðing Lúpínu í Fjarðabyggð
Mál 1604031 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri lagði fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd skipulag og áherslur í vinnu gegn ágengum tegundum í sveitarfélaginu. Áherslan er lögð á að varðveita íslenska vistgerð í fólkvöngum og friðlöndum. Nefndin samþykkir tillögur umhverfisstjóra og felur henni að vinna út frá þeim á komandi sumri.
-
5. Rótarýklúbbur Neskaupstaðar - fuglaskilti í Neskaupstað
Mál 1805047 Allur ferill málsins
Rótarýklúbbur Neskaupstaðar sendi inn beiðni um samvinnu við Fjarðabyggð á uppsetningu nokkurra skilta til fræðslu um fugla með strandlengju Neskaupstaðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að vinna að frekari útfærslum á verkefninu með Rótarklúbbnum og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. Veðurfar í Fjarðabyggð
Mál 1805098 Allur ferill málsins
lagt fram til kynningar minnisblað Veðurvaktarinnar ehf um úrkomumælingar.
-
7. 740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð
Mál 1711163 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu málsins. Drög að viðauka við ábúðarsamning kynnt.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti samningagerð og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.
-
8. 740 Deiliskipulag Kirkjubóls, hesthúsa- og búfjársvæði - óveruleg breyting
Mál 1805227 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, ef samningar nást, að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa- og búfjársvæðis þannig að þrjár vestustu lóðirnar verði felldar út.
-
9. 755 Tjaldsvæði- umsókn um stöðuleyfi á salernisgám
Mál 1805035 Allur ferill málsins
Lögð fram stöðuleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 4. maí 2018, þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir salernisgám á tjaldsvæðið á Stöðvarfirði í stað þeirrar salernisaðstöðu sem fyrir er og fyrirhugað er að fjarlægja. Sótt er um að láta salernisgáminn standa til 31. ágúst 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stöðuleyfið.
-
10. 730 Fagradalsbraut 7 - umsókn um lóð, hesthús
Mál 1805067 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Hreggviðs Friðbergssonar, dagsett 11. maí 2018, þar sem sótt er um lóðina við Fagradalsbraut 7 á Reyðarfirði undir hesthús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
11. 730 Austurvegur 9 - Byggingarleyfi, varmadæla
Mál 1805069 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Jóhanns Óskars Þórólfssonar, dagsett 11. maí 2018, þar sem sótt er um leyfi til setja upp varmadælu við fjölbýlishúsið að Austurvegi 9 á Reyðarfirði. Samþykki annarra eiganda liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
12. 750 Hafnargata - Fyrirspurn um lóð fyrir sjódælistöð
Mál 1805073 Allur ferill málsins
Lögð fram fyrirspurn Elís B. Eiríkssonar hjá Eflu fh. Loðnuvinnslunnar hf, dagsett 11. maí 2015, þar sem spurst er fyrir um möguleika á nýrri lóð fyrir sjódælustöð inna við Löndunarbryggju við fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins á Fáskrúðsfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að hægt sé að koma lóð fyrir sjódælustöð fyrir innan við Löndunarbryggju að uppfylltum þeim kröfum sem Fjarðabyggðarhafnir gera vegna starfsemi hafnarinnar.
-
13. 750 Hlíðargata 55 - byggingarleyfi
Mál 1705170 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Magnúsar Þorra Magnússonar, dagsett 21. maí 2017, þar sem sótt er um leyfi til að setja hurðir í glugga í stofum á jarðhæð suðurhliðar fjölbýlishússins að Hlíðargötu 55 á Fáskrúðsfirði. Aðalhönnuður er Elís B. Eiríksson. Samþykki annarra eiganda liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
14. Umsókn um styrk til fornleifaskráningar í Vöðlavík, á Krossanesi og Útsveit
Mál 1705065 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Hjörleifs Guttormssonar um styrk til fornleifarannsóknar í útsveit Eskifjarðar, Krossanesi og í Vöðlavík.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita 500.000 kr. styrk til verkefnissins. Umhverfisstjóra falið að svara umsækjanda.
-
15. 735 Deiliskipulag Dalur 2 - sameining lóða
Mál 1805058 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Þorsteins Erlingssonar, dagsett 8. maí 2018, vegna lóðanna við Ystadal 5, 7 og 9 sem eru samkvæmt deiliskipulagi ætlaðar fyrir einbýlishús. Áhugi er á að sameina lóðirnar svo hægt sé að byggja á þeim 6 íbúða raðhús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda um mögulega nýtingu annarra lóða.
-
16. 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði
Mál 1701099 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 28. mái 2018. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
17. 740 Dalland - byggingarleyfi, viðbygging
Mál 1805049 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Eiríks Sörens Sörensen Guðnasonar, dagsett 7. maí 2018, þar sem sótt er um leyfi til að stækka til vestur íbúðarhús hans að Dallandi í Norðfjarðarsveit um 40,7 m2 og 109 m3. Aðalhönnuður er Steindór Stefánsson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
18. 740 Efri-Miðbær - Efnistaka úr Norðfjarðará
Mál 1805226 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Guðröðar Hákonarsonar eiganda jarðarinnar Efri-Miðbæjar, dagsett 23. maí 2018, þar sem óskað er eftir leyfi til efnistöku úr Norðfjarðará, vestan við golfvöll.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir efnistökuna að fengnum jákvæðum umsögnum Veiðifélags árinnar og Fiskistofu.
-
19. 750 Hlíðargata 8 - umsókn um rekstrarleyfi
Mál 1802100 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn og bæjarráði til nefndarinnar til umræðu og afgreiðslu að nýju.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að óska frekari gagna vegna málsins.
-
20. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018
Mál 1802079 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 141. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands frá 3. maí 2018.
-
21. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2018
Mál 1804042 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar 2. fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands á árinu 2018.