750 Hafnargata - Fyrirspurn um lóð fyrir sjódælistöð
Mál 1805073 Fyrst á dagskrá 22. maí 2018, síðast 8. júní 2018. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Hafnarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Hafnarstjórn, fundur 198 liður 2
Loðnuvinnslan Fáskrúðsfirði hefur spurst fyrir um möguleika á nýrri lóð fyrir sjódælustöð við löndunarbryggju við loðnubræðslu LVF. Framkvæmdastjóra er falið að ræða við framkvæmdaðila og koma athugasemdum á framfæri.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 205 liður 12
Lögð fram fyrirspurn Elís B. Eiríkssonar hjá Eflu fh. Loðnuvinnslunnar hf, dagsett 11. maí 2015, þar sem spurst er fyrir um möguleika á nýrri lóð fyrir sjódælustöð inna við Löndunarbryggju við fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins á Fáskrúðsfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að hægt sé að koma lóð fyrir sjódælustöð fyrir innan við Löndunarbryggju að uppfylltum þeim kröfum sem Fjarðabyggðarhafnir gera vegna starfsemi hafnarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 246 liður 3.12
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 205“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 246 liður 4.2
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 198“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.