Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 198

22. maí 2018, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 566 liður 10

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 198 frá 22.maí 2018, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 246 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 198 frá 22.maí 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir CI á árinu 2018

    Mál 1801006 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Cruise Iceland var haldinn á Fáskrúðsfirði 3. maí síðastliðinn. Fundargerð og ársreikningur CI lögð fram til kynningar.

  2. 2. 750 Hafnargata - Fyrirspurn um lóð fyrir sjódælistöð

    Mál 1805073 Allur ferill málsins

    Loðnuvinnslan Fáskrúðsfirði hefur spurst fyrir um möguleika á nýrri lóð fyrir sjódælustöð við löndunarbryggju við loðnubræðslu LVF. Framkvæmdastjóra er falið að ræða við framkvæmdaðila og koma athugasemdum á framfæri.

  3. 3. 735 Aðstöðuhús fyrir ferðamenn Eskifirði

    Mál 1803123 Allur ferill málsins

    Til kynningar fyrir hafnarstjórn er aðaluppdráttur að aðstöðuhúsi á Útkaupstaðartúni. Staðsetning byggingarreits byggir á drögum að nýju deiliskipulagi. Meðfylgjandi er einnig umsögn Sjóminjasafns Austurlands um aðaluppdrátt hússins. Hafnarstjórn felur framkvæmastjóra að vinna uppdrátt með nýrri staðsetningu aðstöðuhússins sem verði norðan við malbikaðan stíg við Sjóminjasafnið og flútti við norð-vestur gafl Gömlu búðar. Jafnframt að sækja um samþykkt á byggingaráformum til Eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  4. 4. 735 Tilraunaboranir við Eskifjarðarhöfn

    Mál 1803008 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna fór yfir stöðu tilraunaborana við hafnarsvæði á Eskifirði. Framkvæmdastjóra falið að fylgjast áfram með verkefninu.

  5. 5. Aðstöðuhús við smábátahafnir

    Mál 1503148 Allur ferill málsins

    Þörf er fyrir uppbyggingu á aðstöðuhúsum á smábáthöfnum. Á Norðfirði er þörfin einna mest, bæði vegna aðkomubáta og sömuleiðis er vegalengd frá íbúðabyggð meiri þar en á öðrum smábátahöfnun. Hafnarstjórn vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.