Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 199

14. júní 2018, kl. 12:00 til 14:23, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 567 liður 50

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 199 frá 14.júní 2018, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 248 liður 3

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 14.júní sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Erindisbréf hafnarstjórnar

    Mál 1805118 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til kynningar fagnefndar erindisbréfi hafnarstjórnar. Hafnarstjórn hefur farið yfir breytingar og samþykkir breytingar á erindisbréfi.

  2. 2. Styrkbeiðni vegna hátíðarhalda Sjómannadagsins

    Mál 1806021 Allur ferill málsins

    Sjómannadagsráð Neskaupstaðar sækir um styrk til hafnarstjórar vegna sjómannadagshátíðarhalda árið 2018. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna styrkveitingu til Sjómannadagsráðs Neskaupstaðar. Jafnframt mun hafnarstjórn taka umræðu um fyrirkomulag hátíðahaldanna við viðeigandi aðila á haustdögum.

  3. 3. Beiðni um staðsetningu landtengiskáps við Loðnubræðslu

    Mál 1805252 Allur ferill málsins

    Síldarvinnslan hefur óskað eftir heimild hafnarstjórnar til að setja upp skáp fyrir 150 A rafmagnstengil fyrir neðan fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins. Hafnarstjórn fellst á erindið.

  4. 4. Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði

    Mál 1504173 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna kynnti stöðu framkvæmda við nýjan kant við Egersund. Á framkvæmdaáætlun ársins 2018 var gert ráð fyrir að steypa kantbita og þekju en þar sem ennþá mælist sig á landi hefur ekki enn verið farið í þær framkvæmdir.

  5. 5. Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað

    Mál 1311101 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna kynnti stöðu framkvæmda við nýjan hafnarkant við nótaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað. Á framkvæmdaáætlun ársins 2018 var gert ráð fyrir að steypa kantbita og þekju. Tímasetning verkefnis ræðst af framgangi byggingar Fjarðanets.

  6. 6. Ósk um olíuafgreiðslu á Reyðarfjarðarhöfn og Eskifjarðarhöfn

    Mál 1805232 Allur ferill málsins

    Erindi hefur borist frá Olíuverslun Íslands hf þar sem sótt er um leyfi fyrir olíutank og söludælu á höfnum á Reyðarfirði og Eskifirði. Hafnarstjórn tekur vel í erindið og felur framkvæmdastjóra að svara erindinu og fá upplýsingar um stærð tanka.

  7. 7. Samskip aðstaða í Fjarðabyggð

    Mál 1801145 Allur ferill málsins

    Samskip hafa sent inn erindi um framtíðaraðstöðu fyrirtæksins í Fjarðabyggð. Framkvæmdastjóra falið að ræða erindið frekar við Samskip.

  8. 8. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2019 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1806027 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna kynnti vinnuskjal fyrir gerð fjárfestingaráætlunar 2019 auk 3ja ára áætlunar. Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

  9. 9. Umsókn um hluta af lóðar í Neskaupstað

    Mál 1805256 Allur ferill málsins

    Erindi hefur borist frá Fiskmarkaði Austurlands um afnot af hluta lóðar Fjarðabyggðahafnar í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leiti að láta hendi hluta lóðar og vísar málinu til Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og framkvæmdastjóri fylgir málinu eftir.