Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 200

17. júlí 2018, kl. 16:00 til 17:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (3)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 572 liður 5

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 200 frá 19.júlí 2018, samþykkt samhljóða í umboði bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um undanþágu frá hafnsögu fyrir Andriy Sabinin

    Mál 1807062 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thor Shipping ehf dags. 5. júlí 2018 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Andriy Sabinin skipstjóra á Mv Freyja W. Hafnarstjórn samþykkir að veita undanþáguna.

  2. 2. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2018

    Mál 1801005 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands nr 404 lögð fram til kynningar.

  3. 3. Umsókn um styrk vegna smiðjudaga

    Mál 1807067 Allur ferill málsins

    Erindi hefur borist frá Menningarstofnun Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir styrk vegna smiðjudaga i grunnskólum Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja smiðjudaga um umbeðna fjárhæð.

  4. 4. Endurheimtur á votlendi

    Mál 1709071 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn óskar eftir því við bæjarráð að landsvæði við Hólma verði tekið undan samningi við Landgræðsluna að sinni meðan hafnarsjóður metur hugsanlega stærð og landþörf hafnarsvæðis við Flateyri. Mun sú vinna fara fram á vetri komanda.

  5. 5. 735 Aðstöðuhús fyrir ferðamenn Eskifirði

    Mál 1803123 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir að setja byggingu aðstöðuhúss á Útkaupstaðartúni á bið þangað til skipulag svæðisins liggur fyrir.

  6. 6. Beiðni um styrk vegna hátíðahald á sjómannadaginn 2018

    Mál 1807080 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir að verða við erindi um styrkbeiðni frá Sjómannadagsráði Eskifjarðar. Jafnframt mun hafnarstjórn taka umræðu um fyrirkomulag styrkveitinga til hátiðahalda við viðeigandi aðila á haustdögum.

  7. 7. Hafnarreglugerð

    Mál 1805172 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir hafnarreglugerð og ræddi uppfærslu reglugerðarinnar. Framhaldi máls vísað til næsta fundar hafnarstjórnar.