Bæjarráð, fundur 572
20. júlí 2018, kl. 12:30 til 12:55, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 250 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu. Bæjarráð afgreiddi mál fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. 425.mál - til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða,
Mál 1804108 Allur ferill málsins
Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytis frá 10.júlí þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og Djúpavogshreppur, tilnefndi sameiginlega þrjá aðalmenn og þrjá til vara í svæðisráð vegna strandsvæðisskipulags á Austfjörðum. Fulltrúi Fjarðabyggðar verður Jón Björn Hákonarson og Eydís Ásbjörnsdóttir til vara. Aðalmenn verða jafnframt tilnefndir frá Djúpavogshreppi og Seyðisfjarðarkaupstað.
-
2. Æfingasvæði Golfklúbbs Eskifjarðar
Mál 1807076 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Jóns St. Baldurssonar um lóðamál Golfklúbbs Eskifjarðar. Bæjarráð mun ekki taka afstöðu til bréfsins þar sem um er að ræða málefni sem er á forræði Golfklúbbsins Byggðaholts.
-
3. Endurheimtur á votlendi
Mál 1709071 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, samningi Landgræðslunnar við Fjarðabyggð um endurheimt votlendis í landi Hólma og að hluta í landi Kollaleiru. Bæjarráð samþykkti samninginn á fundi 2.júlí með fyrirvara um að hann hamli ekki uppbyggingu á atvinnu- og hafnsækinni starfsemi á jörðinni Flateyri. Samningnum var jafnframt visað til frekari skoðunar í hafnarstjórn.
Hafnarstjórn tók málið fyrir á fundi 19.júlí og óskar eftir við bæjarráð að landsvæði við Hólma verð tekið undan samningi við Landgræðsluna að sinni, meðan hafnarsjóður metur hugsanlega stærð og landþörf hafnarsvæðis við Flateyri. Mun sú vinna fara fram á vetri komanda. Bæjarráð samþykkir tillögu hafnarstjórnar og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi með breytingum.
-
4. Vinnslusamningur kerfis Atvik
Mál 1806172 Allur ferill málsins
Framlagður Þjónustusamningur milli Fjarðabyggðar og Þekkingar vegna hýsingar á kerfinu Atvik sem nýtt er til skráninga á slysum og atvikum í rekstri stofnana sveitarfélagsins í forvarnarskyni. Samningur er Fjarðabyggð að kostnaðarlausu. Bæjarráð samþykkir þjónustusamnninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
5. Hafnarstjórn - 200
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 200 frá 19.júlí 2018, samþykkt samhljóða í umboði bæjarstjórnar.
- 5.1 Beiðni um undanþágu frá hafnsögu fyrir Andriy Sabinin1807062
- 5.2 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20181801005
- 5.3 Umsókn um styrk vegna smiðjudaga1807067
- 5.4 Endurheimtur á votlendi1709071
- 5.5 735 Aðstöðuhús fyrir ferðamenn Eskifirði1803123
- 5.6 Beiðni um styrk vegna hátíðahald á sjómannadaginn 20181807080
- 5.7 Hafnarreglugerð1805172