Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 573

30. júlí 2018, kl. 08:30 til 09:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 250 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu. Bæjarráð afgreiddi mál fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030

    Mál 1701199 Allur ferill málsins

    Síðari umræða um aðalskipulag Breiðdalshrepps. Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018 - 2030.

  2. 2. Erindisbréf safnanefndar

    Mál 1806133 Allur ferill málsins

    Fyrri umræða um erindisbréf Safnanefndar. Bæjarráð vísar erindisbréfi Safnanefndar til síðari umræðu.

  3. 3. Samþykkt um afgreiðslur byggingarnefndar

    Mál 1805124 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt samþykkt um afgreiðslur bygginganefndar, fyrir sitt leyfi, og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.

    Lögð fram til endurskoðunar og samþykktar, samþykkt um afgreiðslur bygginganefndar. Fyrri umræða. Bæjarráð vísar samþykkt um afgreiðslur bygginganefndar til síðari umræðu.

  4. 4. 735 Hafnargata 2 - Byggingarleyfi, nótahreinsistöð

    Mál 1807091 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Egersund Ísland ehf, dagsett 20. júli 2018, þar sem kynnt eru byggingaráform fyrirtækisins á hreinsistöð fyrir laxanætur og þvottavatn að Hafnargötu 2 á Eskifirði. Aðalhönnuður er Mannvit. Byggingarstjóri er Pálmi Benediktsson.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt byggingaráform fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar sbr. 4. gr. skilmála með deiliskipulagi vegna gerðar mannvirkja og hæðar geyma. Bæjarráð samþykkir umsókn.

  5. 5. 735 Hafnargata 2 - Byggingarleyfi, viðbygging

    Mál 1807092 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Egersund Ísland ehf, dagsett 20. júlí 2018, þar sem kynnt eru byggingaráform fyrirtækisins á 462 m2 og 5001 m3 viðbyggingar fyrir litun laxanóta að Hafnargötu 2 á Eskifirði. Aðalhönnuður er Mannvit. Byggingarstjóri er Pálmi Benediktsson.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt byggingaráform fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar sbr. 4. gr. skilmála með deiliskipulagi vegna hæðar viðbyggingarinnar.

    Bæjarráð samþykkir umsókn.

  6. 6. 730 - Brekkugerði 18 - Umsókn um lóð

    Mál 1807090 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Davíðs Þórs Sigfússonar, dagsett 20 júlí 2018, þar sem sótt er um lóðina við Brekkugerði 18 á Reyðarfirði undir íbúðarhúsnæði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkkir að úthluta lóð.

  7. 7. 740 - Kirkjubólseyrar 16 - Umsókn um lóð

    Mál 1807096 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Ásvalds Sigurðssonar, dagsett 20. júlí 2018, þar sem sótt er um lóðina við Kirkjubólseyri 16 á Norðfirði undir hesthús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að Kirkjubólseyri 16.

  8. 8. Tilnefning í samráðshóp vegna móttöku flóttafólks 2018-2020

    Mál 1807098 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir tilnefningu tveggja fulltrúa af hálfu Fjarðabyggðar í samráðshóp vegna móttöku flóttafólks 2018-2020. Bæjarráð samþykkir að Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir og Sigurður Ólafsson sitji sem fulltrúar Fjarðabyggðar í samráðshópnum.

  9. 9. Umferðarmerkingar í Fjarðabyggð

    Mál 1807121 Allur ferill málsins

    Bréf lögreglustjórans á Austurlandi er varðar umferðarmerkingar í Fjarðabyggð sem eftir er að ganga frá. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarráð felur jafnframt formanni nefndarinnar og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, að funda með lögreglustjóra vegna málsins.

  10. 10. Námskeið fyrir nýkjörna sveitarstjórnarmenn

    Mál 1807135 Allur ferill málsins

    Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst standa fyrir námskeiðum fyrir nýkjörna fulltrúa í sveitarstjórnum. Um heils dags námskeið er að ræða. Öllum er velkomið að sækja námskeiðið, einnig þeim sem hafa setið áður sem kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn. Námskeiðið verður haldið í Austurbrú á Egilsstöðum laugardaginn 25. ágúst. Námskeiðsgjald er 15.900 kr. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að kynna námskeiðið fyrir bæjarfulltrúum og kalla eftir skráningum á námskeiðið.

  11. 11. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 2022

    Mál 1806029 Allur ferill málsins

    Lagður fram til staðfestingar listi yfir áheyrnarfulltrúa Miðflokksins.

    Félagsmálanefnd

    Aðalmaður - Lára Elísabet Eiríksdóttir

    Varamaður - Dagbjört Briem Gísladóttir

    Fræðslunefnd

    Aðalmaður - Alma Sigurbjörnsdóttir

    Varamaður - María Björk Stefánsdóttir

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

    Aðalmaður - Árni Björn Guðmundsson

    Varamaður - Sindri Már Smárason

    Íþrótta- og tómstundanefnd

    Aðalmaður - Guðrún Stefánsdóttir

    Varamaður - Helgi Freyr Ólason

    Bæjarráð staðfestir framlagðan lista yfir áheyrnarfulltrúa Miðflokksins.

  12. 12. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 2 frá 23.júlí 2018, samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

    1. 12.1 Erindisbréf safnanefndar1806133
    2. 12.2 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 20221806029
    3. 12.3 Ný bæjarskilti1805081
    4. 12.4 Heimildamynd um sögu Eiðaskóla1807022
    5. 12.5 Menningarverðlaun SSA 20181807025
    6. 12.6 Styrkur fyrir tónleikaferð um Austurland - Rythmatik Hormónar og Bagdad Brother1805063
  13. 13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 209

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 209 frá 23.júlí 2018, samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

    1. 13.1 Tilboð í sorphirðu utan sorphirðusamnings1807026
    2. 13.2 Samningar um sorphreinsun á Breiðdalsvík1806118
    3. 13.3 Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla1606146
    4. 13.4 Saxa, styrkveiting úr framkvæmdasj., hönnun, og framkvæmd II áfangi1804021
    5. 13.5 730 Hraun 3 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi1603068
    6. 13.6 735 Beiðni um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir1807051
    7. 13.7 Tilkynning um meðferð máls - Meint ólöglegt athæfi á Stöðvarfirði1807058
    8. 13.8 740 Starmýri 15 - Byggingarleyfi, skipt um glugga og hurðir1807050
    9. 13.9 Friðheimur 2, Mjóafirði. Skemmdir á þaki1807032
    10. 13.10 Rútustæði við Hótel Eskifjörð1807068
    11. 13.11 Samþykkt um afgeiðslur byggingarnefndar1805124
    12. 13.12 730 - Mánagata 3 - Byggingarleyfi - Breytingar á fasteign og lóð auk nýbyggingu bílskúrs1807024
    13. 13.13 750 Hlíðargata 8 - umsókn um rekstrarleyfi1802100
    14. 13.15 755 Beiðni um lögn háspennustrengs neðan Fjarðarbrautar1807085
    15. 13.16 735 Hafnargata 2 - Byggingarleyfi, nótahreinsistöð1807091
    16. 13.17 735 Hafnargata 2 - Byggingarleyfi, viðbygging1807092
    17. 13.18 735 Hátún 20 - Byggingarleyfi, uppsteyptur veggur1807066
    18. 13.19 730 - Brekkugerði 18 - Umsókn um lóð1807090
    19. 13.20 Vatnstjón í grunnskóla Eskifjarðar1807006
    20. 13.21 Ný bæjarskilti1805081
    21. 13.22 740 - Kirkjubólseyrar 16 - Umsókn um lóð1807096