NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 2
23. júlí 2018, kl. 17:00 til 18:59, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 573 liður 12
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 2 frá 23.júlí 2018, samþykkt í umboði bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Erindisbréf safnanefndar
Mál 1806133 Allur ferill málsins
Erindisbréf safnanefndar lagt fram til samþykktar. Safnanefnd er menningar- og nýsköpunarnefnd til ráðuneytis um safnamál. Hún fer með stjórn Safnastofnunar Fjarðabyggðar og skal fjalla um málefni safna í umboði menningar- og nýsköpunarnefndar. Í safnanefnd sitja fimm fulltrúar og jafn margir til vara, kosnir af menningar- og nýsköpunarnefnd. Menningar- og nýsköpunarnefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar að erindisbréfi um hlutverk og verkefni safnanefndar. Fundargerðir safnanefndar skulu lagðar fyrir menningar- og nýsköpunarnefnd áður en þær fá fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir erindisbréf safnanefndar.
-
2. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 2022
Mál 1806029 Allur ferill málsins
Safnanefnd er menningar- og nýsköpunarnefnd til ráðuneytis um safnamál. Hún fer með stjórn Safnastofnunar Fjarðabyggðar og skal fjalla um málefni safna í umboði menningar- og nýsköpunarnefndar. Í safnanefnd sitja fimm fulltrúar og jafn margir til vara kosnir af menningar og nýsköpunarnefnd.
Menningar- og nýsköpunarnefnd tilnefndir eftirtalda einstaklinga til setu í safnanefnd.
Aðalmenn:
Jón Björn Hákonarson formaður (B)
Kamma Dögg Gísladóttir varaformaður (L)
Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir (B)
Ævar Ármannsson (L)
Sævar Guðjónsson (D)
Varamenn:
Anton Helgason (B)
Berglind Agnarsdóttir (B)
Magni Þór Harðarson (L)
Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir (L)
Jens Garðar Helgason (D)
-
3. Ný bæjarskilti
Mál 1805081 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað upplýsinga- og kynningafulltrúa um lokatillögu að hönnun á bæjarskilti fyrir Reyðarfjörð. Bæjarráð er sammála um útfærslu á tillögu á bæjarskilti fyrir Reyðarfjörð, þar sem tilgreindir eru sex áfangastaðir ásamt QR kóða með frekari upplýsingum. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og menningar- og nýsköpunarnefnd. Menningar- og nýsköpunarnefnd lýst vel á framkomna tillögu en vill kanna hvort hægt sé að bæta inn fleiri áhugaverðum stöðum fyrir ferðamenn og fjölskyldufólk. Forstöðumanni falið að fylgja málinu eftir.
-
4. Heimildamynd um sögu Eiðaskóla
Mál 1807022 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk vegna gerðar heimildamyndar um sögu Eiðaskóla. Vísað til úthlutunar menningarstyrkja í upphafi árs 2019. Forstöðumanni falið að óska eftir frekari upplýsingum um gerð og fyrirkomulag myndarinnar.
-
5. Menningarverðlaun SSA 2018
Mál 1807025 Allur ferill málsins
Aðalfundur SSA verður haldinn 7. september 2018. Samkvæmt samþykktum SSA skal á aðalfundi ár hvert afhenda Menningarverðlaun SSA til einstaklinga eða félagasamtaka skv. tilnefningum þar um. Óskað er eftir tilnefningum fyrir 15.ágúst nk. Menningar- og safnanefnd mun vinna að tilnefningum næstu daga og skila þeim til SSA fyrir 15.ágúst.
-
6. Styrkur fyrir tónleikaferð um Austurland - Rythmatik Hormónar og Bagdad Brother
Mál 1805063 Allur ferill málsins
Fyrirhuguð tónleikaferð Rythmatik, Hórmóna og Bagdad Brothers 8. - 12 ágúst. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að veita styrk í formi gistingar.