Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 3

10. september 2018, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Stefnumótun vegna skemmtiferðaskipa 2018

    Mál 1807064 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna og atvinnu- og þróunarstjori kynntu mat á stöðu og tækifærum tengdum komu skemmtiferðaskipa til Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn óskar eftir afstöðu menningar- og nýsköpunarnefndar til málsins. Menningar- og nýsköpunarnefnd telur rétt að bíða eftir niðurstöðum frá vinnufundi hagsmunaaðila og eins telur nefndin vanta betri upplýsingar um mengun skipanna í umhverfinu.

  2. 2. Sýnileiki Fjarðabyggðar, áhugaverðra staða og ferðaþjónustuaðila á internetinu

    Mál 1809018 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað varðandi sýnileika Fjarðabyggðar, ferðaþjónustuaðila og fyrirtækja á internetinu. Vinna við stefnumótun í ferðaþjónustu er fyrirhuguð á næstu mánuðum og verður minnisblaðið haft til hliðsjónar við þá vinnu.

  3. 3. Útsýnispallur við Norðfjarðarvita

    Mál 1808154 Allur ferill málsins

    Bréf Páls Björgvins Guðmundssonar frá 28.ágúst, er varðar byggingu útsýnispalls við Norðfjarðarvita. Menningar- og nýsköpunarnefnd fagnar áhugaverðu erindi og bíður spennt eftir framhaldi þess.

  4. 4. Málefni Tónlistarmiðstöðvar Austurlands 2018

    Mál 1803046 Allur ferill málsins

    Þórhallur Árnasonar hefur verið skipaður fulltrúi sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju og Hildur Þórðardóttir fulltrúi Austurbrúar, í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2019

    Mál 1809013 Allur ferill málsins

    Lögð fram gögn vegna vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2019. Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða málaflokks menningarmála verði um 225 milljónir. Lagt fram bréf fjármálastjóra þar sem kemur fram að launaáætlun skal skila fyrir 28. september og starfs-og fjárhagsáætlun einstakra málaflokka skal skila eigi síðar en 15. október. Gert er gert ráð fyrir fundi formanns nefndar og sviðsstjóra með bæjarráði 1. og 5.október. Tekið fyrir á næsta fundi.