Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 1

21. júní 2018, kl. 17:30 til 18:40, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 568 liður 33

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 21. júní lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 249 liður 6

    Til máls tók Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Einar Már Sigurðarson.

    Dagskrártillaga:

    Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að lið 6.5. í fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar verði vísað til listaverkaráðs til faglegrar umfjölllunar og ákvörðun tekin í framhaldi af þvi.

    Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks eru samþykkir tillögu.

    Sex fulltrúar Fjarðalista og Framsóknar eru andvígir tillögu.

    Fulltrúi Miðflokksins situr hjá.

    Tillaga er því felld.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 1 frá 21. júní 2018, utan liðar 6.5., staðfest með 9 atkvæðum.

    Liður 6.5. samþykktur með 6 atkvæðum Fjarðalista og Framsóknar.

    Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja ekki lið 6.5.

    Fulltrúi Miðflokksins situr hjá.

Dagskrá

  1. 1. Erindisbréf menningar- og nýsköpunarnefndar

    Mál 1805120 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til kynningar fagnefndar erindisbréfi nefndarinnar.

    Framlagt uppfært erindisbréf menningar- og nýsköpunarnefndar.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir framlagt erindisbréf.

  2. 2. Málefni Tónlistarmiðstöðvar Austurlands 2018

    Mál 1803046 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnarfundur Tónlistarmiðstöðvar 24.5.2018. Bæjarráð tilnefnir Magna Þór Harðarson sem fulltrúa Fjarðabyggðar í stjórn Tónlístarmiðstöðvar til staðfestingar bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar jafnframt til menningar- og nýsköpunarnefndar að samþykktir Tónlistarmiðstöðvarinar verði endurskoðaðar.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að óskað verði eftir tilnefningu nýrra fulltrúa Austurbrúar og Sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju í stjórn. Óskað er eftir að tilnefningar berist fyrir 20. júlí 2018.

  3. 3. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2018

    Mál 1805082 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnarfunda Héraðsskjalasafns Austurlands frá 26. ferbrúar og 23. apríl sl.

  4. 4. 100 ára fullveldisafmæli

    Mál 1705146 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá nefnd um aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands.

  5. 5. Útilistaverk - Odee

    Mál 1612131 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn vegna útilistaverks Odee, teikningar og ferli málsins kynnt.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar framlagt erindi frá listamanninum Odee. Nefndin getur ekki þekkst gott boð og hafnar erindinu.