Bæjarráð, fundur 568
25. júní 2018, kl. 08:30 til 12:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 249 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 568 og 569 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir og Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 568 frá 25. júní 2018, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Fjarðabyggðar
Mál 1805113 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og úrvinnslu bæjarráðs samþykktum um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar. Framlögð endurskoðuð samþykkt ásamt minnisblaði um breytingar sem gerðar hafa verið á samþykktinni.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2. Fullnaðarafgreiðslur embættismanna og prókúra 2018
Mál 1806117 Allur ferill málsins
Framlögð samþykkt um viðauka á samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar sem fjallar um fullnaðarafgreiðsluheimild embættismanna. Viðaukinn er settur fram óbreyttur en hann var staðfestur fyrr á þessu ári. Endurnýja þarf hann og vísa til nýrrar samþykktar Fjarðabyggðar um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti viðaukanna og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
3. Erindisbréf barnaverndarnefndar
Mál 1805114 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og úrvinnslu bæjarráðs erindisbréfi barnaverndarnefndar. Framlagt uppfært erindisbréf barnaverndarnefndar.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Erindisbréf eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar
Mál 1805115 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og úrvinnslu bæjarráðs erindisbréfi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Framlagt er uppfært erindisbréf sem tekur mið af þeim breytingum sem hafa verið gerðar á stjórnskipum sviðsins með uppskiptum þess en sviðið er nú skipað tveim sviðsstjórum auk skipulags- og byggingarfulltrúa.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir sitt leyti og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
5. Erindisbréf félagsmálanefndar
Mál 1805116 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og úrvinnslu bæjarráðs erindisbréfi félagsmálanefndar. Framlagt uppfært erindisbréf félagsmálanefndar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti uppfært erindisbréf og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
6. Erindisbréf fræðslunefndar
Mál 1805117 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og úrvinnslu bæjarráðs erindisbréfi fræðslunefndar. Framlagt uppfært erindisbréf fræðslunefndar.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir sitt leyti og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
7. Erindisbréf hafnarstjórnar
Mál 1805118 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og úrvinnslu bæjarráðs erindisbréfi hafnarstjórnar. Framlagt uppfært erindisbréf hafnarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir breytingar á erindisbréfi fyrir sitt leyti og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
8. Erindisbréf íþrótta- og tómstundanefndar
Mál 1805119 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og úrvinnslu bæjarráðs erindisbréfi íþrótta- og tómstundanefndar. Framlagt uppfært erindisbréf íþrótta- og tómstundanefndar.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
9. Erindisbréf menningar- og nýsköpunarnefndar
Mál 1805120 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og úrvinnslu bæjarráðs erindisbréfi menningar- og safnanefndar. Lögð er fram tillaga um breytingu á heiti nefndar og hlutverki. Framlagt nýtt erindisbréf menningar- og nýsköpunarnefndar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti erindisbréf menningar- og nýsköpunarnefndar og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
10. Erindisbréf upplýsingaöryggisnefndar
Mál 1805121 Allur ferill málsins
Framlagt til staðfestingar fyrir sameinað sveitarfélag erindisbréf upplýsingaöryggisnefndar. Erindisbréfið er lagt fram óbreytt en það var upphaflega staðfest 22. mars 2018.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti erindisbréf upplýsingaöryggisnefndar og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
11. Erindisbréf framkvæmdaráðs hjúkrunarheimila
Mál 1806139 Allur ferill málsins
Framlagt til staðfestingar fyrir sameinað sveitarfélag erindisbréf framkvæmdaráðs hjúkrunarheimila. Erindisbréfið er lagt fram uppfært en það var upphaflega staðfest 14. nóvember 2016.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti erindisbréf framkvæmdaráðs hjúkrunarheimila og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
12. Öldungaráð 2018 - ný og breytt ákvæði
Mál 1806076 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um ný og breytt ákvæði um notendaráð á grundvelli laga sem taka gildi 1. október 2018. Fjallar meðal annars um öldungaráð. Jafnframt framlagt til kynningar drög að erindisbréfi öldungaráðs sem taka mið af breytingum.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir sitt leyti og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar. Vísað til kynningar í félagsmálanefnd.
-
13. Upplýsingaöryggismál - öryggisnefnd og persónuverndarfulltrúi
Mál 1803051 Allur ferill málsins
Skipa þarf upplýsingaöryggisnefnd fyrir nýtt sameinaða sveitarfélag. Nefndin var skipuð á fundi bæjarráðs 26.3.2018 bæjarritara sem upplýsingatæknistjóra, fræðslustjóra, félagsmálastjóra og forstöðumanni stjórnsýslu. Jafnframt þarf að skipa fyrir persónuverndarfulltrúa fyrir nýtt sameinað sveitarfélag.
Bæjarráð samþykkir að framlengja skipun nefndarinnar óbreytta ásamt því að staðfesta skipun Erlu Bjarnýjar Jónsdóttur sem persónuverndarfulltrúa.
-
14. Upplýsingaöryggisstefna
Mál 1805200 Allur ferill málsins
Framlögð til staðfestingar í sameinuðu sveitarfélagi upplýsingaöryggisstefna. Upplýsingaöryggisstefna var staðfest 22.mars 2018.
Bæjarráð samþykkir upplýsingaöryggisstefnu fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
15. Útvistunarstefna upplýsingatæknimála
Mál 1805201 Allur ferill málsins
Framlögð til staðfestingar í sameinuðu sveitarfélagi útvistunarstefna upplýsingatæknimála. Útvistunarstefna var staðfest 22.mars 2018.
Bæjarráð samþykkir útvistunarstefnu upplýsingatæknimála fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
16. Persónuverndarstefna
Mál 1805202 Allur ferill málsins
Framlögð til staðfestingar í sameinuðu sveitarfélagi persónuverndarstefna. Persónuverndarstefna var staðfest 22.mars 2018.
Bæjarráð samþykkir persónuverndarstefnu fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
17. Verklagsreglur upplýsingatæknimála
Mál 1805203 Allur ferill málsins
Framlagðar sem trúnaðarmál til staðfestingar í sameinuðu sveitarfélagi verklagsreglur í upplýsingatæknimálum. Verklagsreglur voru staðfestar 19.mars 2018.
Bæjarráð staðfestir verklagsreglur óbreyttar.
-
18. Upplýsingaöryggismál - öryggiskröfur ásamt hlítingarlista
Mál 1803098 Allur ferill málsins
Framlagðar sem trúnaðarmál til staðfestingar í sameinuðu sveitarfélagi öryggiskröfur og öryggisráðstafanir sveitarfélagsins í upplýsingatæknimálum. Öryggiskröfur voru staðfestar 19.mars 2018 og öryggisráðstafanirnar 23. apríl 2018.
Bæjarráð staðfestir öryggiskröfur og öryggisráðstafanir óbreyttar.
-
19. Upplýsingaöryggismál - útfærsla öryggisstefnu
Mál 1803097 Allur ferill málsins
Framlagðar sem trúnaðarmál til staðfestingar í sameinuðu sveitarfélagi útfærsla upplýsingaöryggisstefnu í upplýsingatæknimálum. Útfærslan var staðfest 19.mars 2018.
Bæjarráð staðfestir útfærslu upplýsingaöryggisstefnu óbreytta.
-
20. Upplýsingaöryggismál - neyðaráætlun
Mál 1803099 Allur ferill málsins
Framlögð sem trúnaðarmál til staðfestingar í sameinuðu sveitarfélagi neyðaráætlun í upplýsingatæknimálum. Neyðaráætlun var staðfest 19. mars 2018.
Bæjarráð staðfestir neyðaráætlun í upplýsingatæknirekstri óbreytta.
-
21. Vinna sjálfboðaliða
Mál 1710158 Allur ferill málsins
Farið yfir verkefni sjálfboðaliða í Fjarðabyggð.
Bæjarráð þakkar gestum fyrir komuna.
-
22. Svæðisskipulag fyrir Austurland
Mál 1602151 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur verkefnastjóra svæðisskipulags Austurlands um skipan tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í svæðisskipulagsnefnd Austurlands.
Bæjarráð samþykkir að aðalmenn verði Eydís Ásbjörnsdóttir og Ívar Dan Arnarson. Varamenn verði Birta Sæmundsdóttir og Gunnar Jónsson.
-
23. Fyrirspurn um raforkukaup
Mál 1806033 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar erindi Íslenskrar orkumiðlunar ehf sem fjallar um raforkukaup sveitarfélagsins.
Bæjarráð vísar til fjármálastjóra að svara erindi Íslenskrar orkumiðlunar.
Vísað til kynningar eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar.
-
24. Matsaðferðir í fasteignamati
Mál 1609002 Allur ferill málsins
Framlagt vinnuskjal skipulags- og byggingarfulltrúa um útreikning á fasteignamati í Fjarðabyggð.
Vísað til fjármálastjóra til frekari vinnslu í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2019.
-
25. Gjöf til Fjarðabyggðar - skíðamiðstöð
Mál 1806114 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá stjórn SÚN um gjöf Samvinnufélagsins til Fjarðabyggðar. Samvinnufélagið hefur ákveðið að gefa yfirbyggt töfrateppi að upphæð 20 milljónir kr. til Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði. Jafnframt framlagt minnisblað sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.
Bæjarráð þakkar velvilja Samvinnufélags útgerðarmanna og vísar erindinu til vinnu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar við útfærslu skipulags svæðisins og fjárhagsáætlunargerðar 2019
-
26. Kirkjustígur 7 - uppkaup vegna ofanlóðavarna
Mál 1805255 Allur ferill málsins
Lagður fram kaupsamningur um Kirkjustíg 7 á Eskifirði í samræmi við heimild Ofanflóðasjóðs um uppkaup eignarinnar og samþykkt bæjarráðs frá 9. apríl 2018 um kaup eignarinnar á grundvelli matsgerðar.
Bæjarráð samþykkir kaupsamning og felur bæjarstjóra undirritun hans og skjala tengdum kaupum fasteignarinnar.
-
27. Bókun bæjarstjórnar vegna þjónustuskerðingar Landsbanka Íslands
Mál 1806031 Allur ferill málsins
Framlagt svar Landsbankans við bókun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar frá 8.júní sl.
Bæjarráð þakkar svarið en stendur við fyrri bókun sína vegna málsins.
-
28. Atvinnu-og þróunarmál 2018
Mál 1803049 Allur ferill málsins
Farið yfir atvinnu- og þróunarmál í Fjarðabyggð.
-
29. Fundargerðir upplýsingaöryggisnefndar
Mál 1805262 Allur ferill málsins
Framlagðar sem trúnaðarmál 1. og 2. fundargerð upplýsingaöryggisnefndar.
-
30. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2018 - 2022
Mál 1806146 Allur ferill málsins
Sjálfstæðisflokkurinn gerir tillögu um breytingu á skipan fulltrúa í barnaverndarnefnd.
Lára Björnsdóttir víkur sæti sem varmaður í barnaverndarnefnd og í stað hennar er skipuð Ragnheiður Ingibjörg Elmarsdóttir.
-
31. Íþrótta- og tómstundanefnd - 49
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 20. júní lögð fram til umfjöllunar bæjarráðs.Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
32. Fræðslunefnd - 56
Fundargerð fræðslunefndar frá 20. júní sl. lögð fram til umfjöllunar bæjarráðs. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
33. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 1
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 21. júní lögð fram til umfjöllunar.
- 33.5 Útilistaverk - Odee1612131
-
34. Félagsmálanefnd - 110
Fundargerð félagsmálanefndar frá 21. júní sl. lögð fram til umfjöllunar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
35. Barnaverndarfundagerðir 2018
Mál 1801097 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 21. júlí sl. lögð fram til umfjöllunar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.