Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 56

20. júní 2018, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Aðalbjörg Guðbrandsdóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 568 liður 32

    Fundargerð fræðslunefndar frá 20. júní sl. lögð fram til umfjöllunar bæjarráðs. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  • Bæjarstjórn, fundur 249 liður 4

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 56 frá 20. júní 2018, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Erindisbréf fræðslunefndar

    Mál 1805117 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til kynningar fagnefndar erindisbréfi nefndarinnar. Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við erindisbréfið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.

  2. 2. Lýðheilsa ungs fólks í 8.-10.b. í Fjarðabyggð 2018

    Mál 1806041 Allur ferill málsins

    Lögð er fram til kynningar skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um lýðheilsu ungs fólks í Fjarðabyggð 2018. Skýrslan byggir á könnun frá í febrúar 2018 sem gerð var í öllum 8.-10. bekkjum landsins. Skýrslan sýnir niðurstöðu ungmennanna í Fjarðabyggð samanborið við höfuðborgarsvæðið og landið í heild. Spurt var um eftirfarandi þætti: Þróun vímuefnaneyslu - áfengisneyslu, tóbaksnotkun og aðra vímuefnaneyslu, viðhorf foreldra nemenda í 10. bekk til neyslu, félagslega þætti, útivistartíma og heilsu og líðan. Fulltrúar Rannsóknar og greiningar munu koma austur í haust og kynna niðurstöður í Fjarðabyggð. Skýrslan er aðgengileg á heimasíðu Fjarðabyggðar.

  3. 3. Skóladagatöl 2018-2019

    Mál 1803048 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja skóladagatöl Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla, leikskóladeildar og grunnskólans. Á skóladagatölunum kemur m.a. fram hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Fræðslunefnd samþykkir skóladagatölin.

  4. 4. Snjallsímanotkun í grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1806053 Allur ferill málsins

    Á fundi bæjarráðs 21. maí var eftirfarandi bókun samþykkt, "Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur til að fræðslunefnd taki afstöðu til þess að snjallsímanotkun barna og unglinga í grunnskólum Fjarðabyggðar verði bönnuð frá og með næsta skólaári.

    Er nemendum heimilt að koma með snjallsíma í skólann, en á meðan að skólastarfi stendur er hann í vörslu skólaritara og verður afhentur nemenda í lok skóladags. Sveitarfélagið skuldbindur sig á móti að fjárfesta í spjaldtölvum ef þess gerist þörf vegna kennslu.

    Margar þjóðir m.a Frakkland, hafa bannað snjallsíma í grunnskólum. Rannsóknir sýna að aukin snjallsímanotkun barna hefur áhrif á andlega líðan barna og unglinga og eykur kvíða og þunglyndi. Skólinn á að vera sá vettvangur þar sem börn og unglingar eiga félagsleg samskipti sín á milli án truflana frá símtækjum." Fræðslunefnd vill fá mat skólastjórnenda og Skólaskrifstofu Austurlands á notkun snjalltækja í skólum, kosti og galla, fræðslustjóra falið að kalla eftir upplýsingum.