Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Skóladagatöl 2018-2019

Mál 1803048 Fyrst á dagskrá 21. mars 2018, síðast 2. júlí 2018. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Fræðslunefnd, fundur 53 liður 3

    Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð þar sem sést hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Reynt er að samræma frídaga nemenda í hverjum byggðarkjarna eftir því sem kostur er og tekst það að mestu. Fræðslunefnd frestar afgreiðslu skóladagatals Stöðvarfjarðarskóla til næsta fundar nefndarinnar, en samþykkir önnur skóladagatöl.

  2. Fræðslunefnd, fundur 56 liður 3

    Fyrir liggja skóladagatöl Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla, leikskóladeildar og grunnskólans. Á skóladagatölunum kemur m.a. fram hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Fræðslunefnd samþykkir skóladagatölin.

  3. Bæjarstjórn, fundur 249 liður 4.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 56“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is