Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 110

21. júní 2018, kl. 15:00 til 16:00, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 568 liður 34

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 21. júní sl. lögð fram til umfjöllunar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  • Bæjarstjórn, fundur 249 liður 5

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 110 frá 21. júní 2018, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Erindisbréf félagsmálanefndar

    Mál 1805116 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til kynningar fagnefndar erindisbréfi nefndarinnar. Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindisbréfið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.

  2. 2. Skipan framkvæmdaráðs hjúkrunarheimila 2018-2022

    Mál 1806062 Allur ferill málsins

    Framlagt er erindisbréf til framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna. Framkvæmdaráð er skipað þremur kjörnum fulltrúum úr félagsmálanefnd og tveimur til vara. Nefndin gerir ekki ahugasemnd við erindisbréfið. Framkvæmdráð hjúkrunarheimilanna 2018-2022 verður skipað á eftirfarandi hátt: Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir formaður, Ásmundur Páll Hjaltason og Heiðar Már Antonsson. Guðfinna Erlín Stefánsdóttir og Valdimar Másson eru varamenn.

  3. 3. Lýðheilsa ungs fólks í 8.-10.b. í Fjarðabyggð 2018

    Mál 1806041 Allur ferill málsins

    Lögð er fram til kynningar skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um lýðheilsu ungs fólks í Fjarðabyggð 2018. Skýrslan byggir á könnun frá í febrúar 2018 sem gerð var í öllum 8.-10. bekkjum landsins. Skýrslan sýnir niðurstöðu ungmennanna í Fjarðabyggð samanborið við höfuðborgarsvæðið og landið í heild. Spurt var um eftirfarandi þætti: Þróun vímuefnaneyslu - áfengisneyslu, tóbaksnotkun og aðra vímuefnaneyslu, viðhorf foreldra nemenda í 10. bekk til neyslu, félagslega þætti, útivistartíma og heilsu og líðan. Fulltrúar Rannsóknar og greiningar munu koma austur í haust og kynna niðurstöður í Fjarðabyggð. Skýrslan er aðgengileg á heimasíðu Fjarðabyggðar.