Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 111

14. ágúst 2018, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Rekstur Uppsala til framtíðar

    Mál 1803070 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilanna og félagsmálastjóri greindu frá málefnum Uppsala og Hulduhlíðar.

  2. 2. Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2011

    Mál 1109095 Allur ferill málsins

    Framlögð er tillaga að endurskoðun jafnréttisáætlunar Fjarðabyggðar. Félagsmálanefnd lauk vinnu við endurskoðun áætlunarinnar 8. maí s.l. og vísaði til afgreiðslu hjá nýrri félagsmálanefnd. Félagsmálanefnd samþykkir endurskoðaða jafnréttisáætlun og vísar til bæjarráðs.

  3. 3. Öldungaráð 2018 - ný og breytt ákvæði

    Mál 1806076 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um ný og breytt ákvæði um notendaráð á grundvelli laga sem taka gildi 1. október 2018. Fjallar meðal annars um öldungaráð. Jafnframt framlagt til kynningar drög að erindisbréfi öldungaráðs sem taka mið af breytingum.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir sitt leyti og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar. Vísað til kynningar í félagsmálanefnd.

  4. 4. Erindisbréf öldungaráðs

    Mál 1805131 Allur ferill málsins

    Samkvæmt samþykktum um stjórn og fundarsköp Fjarðabyggðar. Öldungaráð er félagsmálanefnd til ráðuneytis um þjónustu við aldraðra og framkvæmd og þróun öldrunarmála. Hún skal fjalla um heilsufar og félagslega velferð aldraðra, samhæfingu þjónustu og tryggja að aldraðir fái þá þjónustu sem þeir þarfnast. Í öldungaráði sitja þrír fulltrúar kosnir af bæjarstjórn að afloknum sveitarstjórnarkosningum, þrír fulltrúar tilnefndir af félögum eldri borgara auk eins fulltrúa heilsugæslu. Félagsmálanefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar að erindisbréfi um hlutverk og verkefni öldungaráðs. Fundargerðir öldungaráðs skulu lagðar fyrir félagsmálanefnd áður en þær fá fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. Félagsmálanefnd samþykkir erindisbréfið og vísar til bæjarráðs.