Félagsmálanefnd, fundur 112
28. ágúst 2018, kl. 16:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
- Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
- Valdimar Másson, aðalmaður
- Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 577 liður 21
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 112 frá 28.ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 252 liður 2
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 28.ágúst 2018 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks
Mál 1805158 Allur ferill málsins
Reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks lagðar fram til meðferðar og samþykktar félagsmálanefndar. Félagsmálanefnd samþykkir reglur Fjarðabyggðar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks og vísar til staðfestingar í bæjarráði.
-
2. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Mál 1805162 Allur ferill málsins
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning lagðar fram til meðferðar og samþykktar félagsmálanefndar. Félagsmálanefnd samþykkir reglur um sérstakan húsnæðisstuðning og vísar til staðfestingar í bæjarráði.
-
3. Reglur um styrki til náms og verkfæra og tækjakaupa fatlaðs fólks
Mál 1805165 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd fjallaði um reglur um styrki til náms og verkfæra og tækjakaupa fatlaðs fólks. Nefndin samþykkir reglurnar og vísar til bæjarráðs.
-
4. Siðareglur fjölskyldusviðs
Mál 1805169 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd tók siðareglur fjölskyldusviðs til meðferðar og samþykktar. Nefndin samþykkir reglurnar og vísar til bæjarráðs.
-
5. Reglur um þjónustuíbúðir fyrir aldraða - Breiðablik
Mál 1805167 Allur ferill málsins
Framlagt er minnisblað félagsmálastjóra og breyttar reglur um þjónustuíbúðir fyrir aldraða til meðferðar og samþykktar félagsmálanefndar. Félagsmálanefnd samþykkir breyttar reglur um þjónustuíbúðir og vísar til staðfestingar í bæjarráði.
-
6. Reglur um stuðningsfjölskyldur fatlaðra barna
Mál 1805164 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað félagsmálastjóra og endurskoðaðar reglur um stuðningsfjölskyldur til meðferðar og samþykktar félagsmálanefndar. Félagsmálanefnd samþykkir endurskoðaðar reglur um stuðningsfjölskyldur og vísar til staðfestingar í bæjarráði.
-
7. Reglur um útivistartíma barna
Mál 1805168 Allur ferill málsins
Reglur Fjarðabyggðar um útivistartíma barna lagðar fram til meðferðar og samþykktar félagsmálanefndar. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar til staðfestingar í bæjarráði.
-
8. Reglur um fjárhagsaðstoð
Mál 1805159 Allur ferill málsins
Framlagt er minnisblað félagsmálastjóra og reglur Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð til meðferðar og samþykktar í félagsmálanefnd. Félagsmálanefnd samþykkir breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð og vísar til bæjarráðs.