Bæjarráð, fundur 577
3. september 2018, kl. 08:30 til 10:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 252 liður 1
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráð frá 3. september 2018 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019
Mál 1808019 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga fjármálastjóra að úthlutun að römmum fyrir árið 2019 ásamt áætlun um sjóðsstöðu og rekstur áranna 2018 og 2019 og stöðu efnahags í lok beggja ára. Fjárhagsrömmum vísað til fastanefnda.
-
2. Útsýnispallur við Norðfjarðarvita
Mál 1808154 Allur ferill málsins
Bréf Páls Björgvins Guðmundssonar frá 28.ágúst, er varðar byggingu útsýnispalls við Norðfjarðarvita. Bæjarráð líst vel á framtakið og vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, hafnarstjórnar og menningar- og nýsköpunarnefndar.
-
3. Forkaupsréttur á bátnum Elli P SU - 206
Mál 1808151 Allur ferill málsins
Óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til þess hvort sveitarfélagið vilji nýta forkaupsrétt að bátnum Ella P. SU-206, skipaskrárnr. 2711. Bæjarráð mun ekki nýta forkaupsrétt.
-
4. Kynningarfundur um starfsemi Eignarhaldsfélags Brunabótafélag Íslands
Mál 1808132 Allur ferill málsins
Lögð fram gögn vegna kynningarfundar um starfsemi Eignarhalds Brunabótafélags Íslands sem haldinn var 24.ágúst.
-
5. Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2018
Mál 1808065 Allur ferill málsins
Fulltrúar Sköpunarmiðstöðvarinnar, Rósa Valtingojer og Una Björk Sigurðardóttir, sátu þennan lið fundarins. Ársreikningur miðstöðvarinnar fyrir árið 2017 lagður fram til kynningar. Beiðni Sköpunarmiðstöðvarinnar um fjárframlag á næstu árum vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2019. Erindi verður svarað þegar vinnu við fjárhagsáætlun 2019 lýkur. Jafnframt vísað til kynningar í fræðslunefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og menningar- og nýsköpunarnefnd.
-
6. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi
Mál 1804081 Allur ferill málsins
Framlögð dagskrá aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi ásamt fylgigögnum fundarins.
-
7. Fundargerðir stjórnar SSA 2018
Mál 1802003 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnarfundar frá 17.ágúst lögð fram til kynningar.
-
8. Reglur um niðurgreiðslu á ferðum starfsmanna Fjarðabyggðar með skipulögðum samgöngum
Mál 1805139 Allur ferill málsins
Reglur um niðurgreiðslu á ferðum starfsmanna Fjarðabyggðar með skipulögðum samgöngum, lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
9. Reglur um styrki tl stjórnamálaflokka
Mál 1805147 Allur ferill málsins
Reglur um styrki til stjórnmálaflokka, lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
10. Reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks
Mál 1805158 Allur ferill málsins
Reglur Fjarðabyggðar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks, lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
11. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Mál 1805162 Allur ferill málsins
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning, lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
12. Reglur um styrki til náms og verkfæra og tækjakaupa fatlaðs fólks
Mál 1805165 Allur ferill málsins
Reglur um styrki til náms og verkfæra og tækjakaupa fatlaðs fólks, lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
13. Siðareglur fjölskyldusviðs
Mál 1805169 Allur ferill málsins
Siðareglur fjölskyldusviðs lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
14. Reglur um þjónustuíbúðir fyrir aldraða - Breiðablik
Mál 1805167 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað félagsmálastjóra og breyttar reglur um þjónustuíbúðir fyrir aldraða, lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
15. Reglur um stuðningsfjölskyldur fatlaðra barna
Mál 1805164 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað félagsmálastjóra og endurskoðaðar reglur um stuðningsfjölskyldur, lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
16. Reglur um útivistartíma barna
Mál 1805168 Allur ferill málsins
Reglur um útivistartíma barna lagðar fram til samþykktar, í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
17. Reglur um fjárhagsaðstoð
Mál 1805159 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað félagsmálastjóra og reglur Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð, lagðar fram til samþykktar í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarstjórnar.
-
18. Reglur um birtingu gagna með fundargerðum
Mál 1805197 Allur ferill málsins
Lagðar fram til samþykktar breytingar á reglum um birtingu gagna með fundargerðum. Vísað til bæjarstjórnar.
-
19. Samningur um sjúkraflutninga í Breiðdal og á Djúpavogi
Mál 1804096 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað slökkviliðsstjóra.
Bæjarráð samþykkir að gerður verði viðauki við samning um sjúkraflutninga í Breiðdal og á Djúpavogi við Heilbrigðisstofnun Austurlands sbr. minnisblað slökkviliðsstjóra. Jafnframt samþykkir bæjarráð tillögu slökkviliðsstjóra um breytingu á þóknun fyrir viðbragðsskyldu hlutastarfandi sjúkraflutningamanna sem heyra undir samningana.
-
20. Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt Breiðdalur
Mál 1807140 Allur ferill málsins
Áframhald umræðu um lagningu ljósleiðara í Breiðdal. Verið er að ganga frá samningi við verktakann. Verkið mun hefjast um leið og gengið hefur verið frá öllum leyfismálum. Framlögð frumdrög samnings við Dalbjörg ehf. um lagningu ljósleiðarastrengs í Breiðdal. Bæjarstjóra falið að ljúka samningagerð við verktaka.
-
21. Félagsmálanefnd - 112
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 112 frá 28.ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.
- 21.1 Reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks1805158
- 21.2 Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning1805162
- 21.3 Reglur um styrki til náms og verkfæra og tækjakaupa fatlaðs fólks1805165
- 21.4 Siðareglur fjölskyldusviðs1805169
- 21.5 Reglur um þjónustuíbúðir fyrir aldraða - Breiðablik1805167
- 21.6 Reglur um stuðningsfjölskyldur fatlaðra barna1805164
- 21.7 Reglur um útivistartíma barna1805168
- 21.8 Reglur um fjárhagsaðstoð1805159