Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 578

10. september 2018, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2019

    Mál 1809015 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf fjármálastjóra um úthlutaðan ramma og fjárheimildir bæjarráðs vegna fjárhagsáætlunar ársins 2019.

    Bæjarráð vísar til sviðsstjóra gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2019.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2018 - viðauki 5

    Mál 1809032 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að viðauka nr.5 vegna þegar samþykktra útgjalda, meðal annars vegna sameiningar sveitarfélaganna Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar. Viðauki kemur til afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs.

  3. 3. Kauptilboð í Bleiksárhlíð 2-4 3ja herb. 217-0087

    Mál 1809033 Allur ferill málsins

    Framlagt kauptilboð í Bleiksárhlíð 2-4, 3ja herb. íbúð á 3ju hæð fastanr. 217-0087, frá Margréti Bjarnadóttur og David Joseph Geymonat.

    Bæjarráð samþykkir að taka kauptilboðinu og felur bæjarstjóra undirritun skjala vegna sölu eignarinnar.

  4. 4. Tilraunaverkni í húsnæðismálum á landsbyggðinni

    Mál 1809046 Allur ferill málsins

    Íbúðalánasjóður auglýsti í vikunni tilraunaverkefni í húsnæðismálum á landsbyggðinni. Markmiðið er að leita leiða til þess að bregðast við þeim mikla húsnæðisvanda sem ríkir víðsvegar á landsbyggðinni, m.a. vegna óvirks íbúða- og leigumarkaðar og skorts á viðunandi íbúðarhúsnæði.

    Fjármálastjóra falið að vinna málið áfram í samstarfi við bæjarstjóra og senda inn umsókn fyrir Fjarðabyggð í framhaldinu.

  5. 5. Fræðslufundur fyrir sveitarstjórnarfólk 2018

    Mál 1809008 Allur ferill málsins

    KPMG bíður upp á námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn í tengslum við fjármál sveitarfélaga, fjárhagsáætlanir og ársreikninga.

    Bæjarráð þakkar boð KPMG og felur fjármálastjóra að boða kjörna fulltrúa á námskeiðið.

  6. 6. 760 Sorplosun á Breiðdalsvík

    Mál 1808050 Allur ferill málsins

    Vísað frá hafnarstjórn. Leitað hefur verið eftir tilboðum í leigu og losun á sorpgámum í Breiðdalshöfn. Hafnarstjórn mælir með að tilboði lægstbjóðanda verði tekið.

    Bæjarráð samþykkir að tilboði lægstbjóðanda,Sjónarás ehf., verði tekið og samið við verktaka til áramóta. Bæjarstjóra falið að undirrita samning.

  7. 7. Framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

    Mál 1809029 Allur ferill málsins

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024 vegna verkefna sem tengjast aðgerð C.1 Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. Lagðar fram reglur um úthlutun á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar.

    Bæjarráð samþykkir að vísa til Sambands sveitarfélaga á Austurlandi tillögu um að sækja um styrk fyrir Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði.

  8. 8. Fiskeldi ályktun bæjarráðs

    Mál 1809047 Allur ferill málsins

    Bæjarráð Fjarðabyggðar vill ítreka fyrri bókun sína um útgáfu leyfa í tengslum við laxeldi. Enda tafir við leyfisveitingu farinn að bitna mjög á þeirri starfsemi sem hefur verið í uppbyggingu í Reyðarfirði undanfarin ár. Fyrirhuguð 10.000 tonna viðbótarframleiðsla á laxi í Reyðarfirði hefur verið til meðferðar í stjórnsýslunni frá árinu 2012. Það er óásættanlegt að fyrirtæki sem vill fjárfesta í atvinnuuppbyggingu sé búið að vera í umsóknarferli í sex ár án þess að niðurstaða sé í sjónmáli og virðist að greinin sitji ekki við sama borð hér og í öðrum landsfjórðungum. Eðlilegt er að sú umsókn taki mið af lögum og reglum sem í gildi eru og þeim gögnum sem þegar hefur verið aflað og lögð fram.

    Í samræmi við ályktun SSA 2018 leggur Fjarðabyggð áherslu á mikilvægi þess að skapa heilbrigt og hvetjandi umhverfi fyrir fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í fjórðungnum. Fiskeldi getur orðið ein af stoðum atvinnulífsins í Fjarðabyggð og þarf líkt og aðrar atvinnugreinar starfsumhverfi sem er skýrt og stöðugt til langs tíma.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar hvetur stjórnvöld til þess að afgreiða þau mál sem beðið hafa afgreiðslu um árabil og hafa verið tafin ítrekað á grundvelli afturvirkni og jafnvel ólögmætra sjónarmiða.

    Jafnframt mun bæjarráð óska eftir fundi með Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um málefni laxeldis í Fjarðabyggð.

  9. 9. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2018

    Mál 1802007 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins nr.862 frá 31.ágúst, lögð fram til kynningar.

  10. 10. Hafnarstjórn - 202

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 202 frá 3.september 2018, lögð fram til umfjöllunar.

  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 213

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 213 frá 3.september 2018, lögð fram til umfjöllunar.