Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 576

28. ágúst 2018, kl. 13:00 til 15:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1808019 Allur ferill málsins

    Farið yfir drög að rammaúthlutun vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2019.

  2. 2. Niðurfelling forkaupsréttar Fjarðabyggðar á Læknishúsinu á Fáskrúðsfirði

    Mál 1808076 Allur ferill málsins

    Bréf Minjaverndar frá 16.ágúst er varðar beiðni um að forkaupsréttur Fjarðabyggðar að Læknishúsinu Hafnargötu 12 Fáskrúðsfirði, verði felldur úr gildi.

    Vísað til bæjarstjóra til skoðunar. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  3. 3. Fasteignagjöld í Fjarðabyggðar

    Mál 1808074 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur Gunnars Stefáns Larssonar um fasteignagjöld í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð þakkar erindi en það verður tekið til umfjöllunar við vinnslu fjárhagsáætlunar 2019.

  4. 4. Kollur Reyðarfirði - jarðvinna vegna gatnagerðar

    Mál 1808018 Allur ferill málsins

    Lögð fram niðurstaða verðkönnunnar vegna gatnagerðar innan búfjársvæðisins Kolls á Reyðarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda og felur bæjarstjóra undirritun samnings. Bæjarstjóra falið að fara yfir verkefnið.

  5. 5. Vinnslusamningur vegna fasteigna og loftmyndakerfis

    Mál 1807115 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar þjónustusamningur við Loftmyndir ehf. vegna stækkunar sveitarfélagsins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar samningnum til umfjöllunar í bæjarráði.

    Vísað til persónuverndarfulltrúa til yfirferðar á vinnslusamningi. Þjónustusamningur tekinn fyrir að nýju þegar samningar eru frágengnir.

  6. 6. Hafnarreglugerð

    Mál 1805172 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn hefur samþykkt drög að breytingum á hafnarreglugerð fyrir Fjarðabyggðarhafnir og vísar þeim til meðferðar í bæjarráði.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  7. 7. 760 Hönnun á hafnarsvæði í Breiðdalsvík

    Mál 1808049 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tilboð frá Landmótun í hönnunarvinnu fyrir hafnarsvæði á Breiðdalsvík. Hafnarstjórn hefur lagt til að tilboðinu verði tekið og viðauki verði gerður við fjárhagsáætlun ársins 2018 vegna vinnunnar sem greiðist af framlagi jöfnunarsjóðs. Vísað til bæjarráðs til samþykktar.

    Bæjarráð samþykkir tilboðið og felur bæjarstjóra undirritun samnings. Gerð viðauka vísað til fjármálastjóra.

  8. 8. 760 Sorplosun á Breiðdalsvík

    Mál 1808050 Allur ferill málsins

    Vísað frá hafnarstjórn. Nauðsynlegt er að gera ráðstafanir vegna sorplosunar hjá Breiðdalsvíkurhöfn. Leitað hefur verið eftir tilboðum í leigu og losun á sorpgámum. Hafnarstjórn mælir með að tilboði lægstbjóðanda verði tekið. Visað til bæjarráðs til samþykktar.

    Bæjarstjóra falið að skoða málið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  9. 9. Verkefnið "SIBS lif og heilsa" óskar eftir samstarfi við Sveitarfélög á Austurlandi

    Mál 1808090 Allur ferill málsins

    SÍBS Líf og heilsa er forvarnaverkefni um lífsstíl og heilbrigði þar sem SÍBS og Hjartaheill heimsækja bæjarfélög og bjóða ókeypis heilsufarsmælingu og þátttöku í könnun um lífsstíl og heilsufar. Mælingaferð um Austurland er nýlokið en alls þáðu 1.044 Austfirðingar heilsufarsmælingu í ágúst, þar af 498 íbúar í Fjarðabyggð en boðið var upp á mælingar í sex þéttbýliskjörnum í Fjarðabyggð frá Breiðdalsvík til Neskaupstaðar. Óskað er eftir að átakið verði styrkt um 50.000 til 100.000 kr.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja átakið um 50.000 kr. Tekið af liðinum óráðstafað 21690.

  10. 10. Umsókn um styrk til fornleifarannsókna í Stöð á Stöðvarfirði

    Mál 1808092 Allur ferill málsins

    Bréf Björgvins Vals Guðmundssonar, f.h. Félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfiði, er varðar beiðni um allt að 10 milljóna kr. styrk til að hægt sé að vinna áfram að og hraða fornleifarannsóknum í Stöð.

    Vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar. Jafnframt er atvinnu- og þróunarstjóra falið að kanna með mögulega styrki í tengslum við verkefnið.

  11. 11. Snjallsímanotkun í grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1806053 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd hefur fjallað um tillögu bæjarráðs um snjallsímanotkun í grunnskólum sem vísað var til nefndarinnar í maí síðastliðnum. Niðurstaða fræðslunefndar er að æskilegast sé að auka snjalltækjakost grunnskólanna í Fjarðabyggð og miða við að viðunandi búnaður verði kominn í skólana í byrjun árs 2019. Samhliða snjalltækjavæðingunni verði nemendum meinað að mæta með snjallsíma og önnur snjalltæki í skóla nema með sérstakri undanþágu frá skólastjóra. Fræðslunefnd leggur til að settur verði á fót starfshópur skipaður skólastjórum grunnskólanna í Fjarðabyggð og fræðslustjóra, sem meti þörf á snjalltækjaeign skólanna og geri tillögu að kaupum á snjalltækjum til fræðslunefndar fyrir 15. október.

    Bæjarráð tekur jákvætt í þá hugmynd að banna snjallsíma í grunnskólum sveitarfélagsins en vísar málinu að nýju til fræðslunefndar þar sem bókun nefndarinnar er ekki nægjanlega skýr varðandi snjallsímanotkun. Jafnframt er fræðslunefnd falið að móta reglur um hvernig framfylgja eigi snjallsímabanni.

  12. 12. Reglur um leikskóla

    Mál 1805160 Allur ferill málsins

    Gildandi reglur um leikskóla lagðar fram til samþykktar með lítilsháttar breytingum, eftir yfirferð í fræðslunefnd.

    Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  13. 13. Tæknidagur Fjölskyldunnar - beiðni um styrk

    Mál 1808107 Allur ferill málsins

    Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn í fimmta sinn laugardaginn 6. október næstkomandi í Íþróttahúsinu í Neskaupstað. Verkmenntaskóli Austurlands óskar eftir styrk sem nemur leigu og ræstingarkostnaði íþróttahússins í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir erindið og styrkur veittur af liðnum óráðstafað 21690.

  14. 14. Vinabæjarfundur í Eskilstuna 2018

    Mál 1801175 Allur ferill málsins

    Bréf Eskilstuna frá 17.ágúst 2018, er varðar vinabæjarsamskipti.

    Bæjarráð felur bæjarritara að vera tengiliður við vinabæina vegna verkefnisins.

  15. 15. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs

    Mál 1805130 Allur ferill málsins

    Samþykkt um meðhöndlun úrgangs lögð fram til umfjöllunar.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  16. 16. Samþykkt um fráveitur

    Mál 1805126 Allur ferill málsins

    Samþykkt um fráveitur lögð fram til umfjöllunar.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  17. 17. Samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss

    Mál 1805132 Allur ferill málsins

    Samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss lögð fram til umfjöllunar.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  18. 18. Samþykkt um hundhald

    Mál 1805128 Allur ferill málsins

    Samþykkt um hundahald lögð fram til umfjöllunar.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  19. 19. Samþykkt um kattahald og önnur dýr

    Mál 1805129 Allur ferill málsins

    Samþykkt um kattahald og önnur dýr lögð fram til umfjöllunar.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  20. 20. Samþykkt um fiðurfé

    Mál 1805125 Allur ferill málsins

    Samþykkt um fiðurfé lögð fram til umfjöllunar.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  21. 21. Reglur um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi í Fjarðabyggð

    Mál 1804078 Allur ferill málsins

    Til umræðu eru drög að reglum um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi í Fjarðabyggð. Fræðslunefnd hefur samþykkt fyrirliggjandi drög að reglum á 57. fundi sínum og vísaði málinu til umræðu í bæjarráði og íþrótta- og tómstundanefnd. Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkti reglurnar með breytingu á 1. mgr. 4. greinar, sem eftir breytingar hljóðar svo: "Gjafir til starfstöðva fjölskyldusviðs frá utanaðkomandi aðilum, t.d. fyrirtækjum, félagasamtökum og stofnunum má þiggja ef stjórnandi telur þær hafa fræðslu- og forvarnagildi og samræmast stefnu fjölskyldusviðs."

    Bæjarráð samþykkir breytingar fyrir sitt leyti. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  22. 22. Samþykkt um ungmennaráð Fjarðabyggðar

    Mál 1805133 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt breytingar á samþykkt um ungmennaráð Fjarðabyggðar vegna sameiningar Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarráðs.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  23. 23. Reglur um styrkveitingu og útlutun tíma í íþróttamannvirkjum til íþróttafélaga og almennings

    Mál 1805166 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt breytingar á reglum um styrkveitingu og úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum til íþróttafélaga og almennings vegna sameiningar Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarráðs.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  24. 24. Úthlutunarreglur íþróttastyrkja

    Mál 1805171 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt breytingar á reglum um úthlutun íþróttastyrkja vegna sameiningar Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarráðs.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  25. 25. Reglugerð vegna kjör á íþróttamanni ársins

    Mál 1808026 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt breytingar á reglum um úthlutun íþróttastyrkja vegna sameiningar Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Vísað til bæjarráðs.

    Vísað til staðfestingar bæjarráðs.

  26. 26. Eftirlitsmyndavélar í Fjarðabyggð

    Mál 1808136 Allur ferill málsins

    Bæjarráð lýsir yfir vilja sínum að koma að uppsetningu löggæslumyndavéla við innkomu í sveitarfélagið.

    Bæjarstjóra falið að funda með Lögreglustjóra Austurlands um málið og leggja fyrir bæjarráð tillögu um samstarf.

  27. 27. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 211

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 211 frá 20.ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.

  28. 28. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 212

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 212 frá 27. ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.

  29. 29. Hafnarstjórn - 201

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 201 frá 20.ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.

  30. 30. Fræðslunefnd - 58

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 58 frá 22.ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.

  31. 31. Íþrótta- og tómstundanefnd - 50

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 50 frá 23.ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.

  32. 32. Barnaverndarfundagerðir 2018

    Mál 1801097 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnarnverndarnefndar, nr. 88 frá 17.ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.