Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 212

27. ágúst 2018, kl. 16:00 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Ívar Dan Arnarson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Þorsteinn Sigurjónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 576 liður 28

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 212 frá 27. ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Fráveita til framtíðar

    Mál 1807016 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri veitusviðs kynnti erindi sem hann flutti á fagþingi Samorku í maí 2018 um fráveitu Fjarðabyggðar.

  2. 2. Kollaleira - veðurstöð

    Mál 1808104 Allur ferill málsins

    Innsent erindi frá Inga Lár Vilbergssyni um að breyta nafni veðurstöðvarinnar á Kollaleiru í Veðurstöðina á Reyðarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að taka málið upp við Veðurstofu Íslands og kanna hvort breyta megi heitinu í Reyðarfjörður - Kollaleira.

  3. 3. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar

    Mál 1805134 Allur ferill málsins

    Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar lögð fram til endurskoðunar

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar og fól sviðstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju