Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 211

20. ágúst 2018, kl. 16:00 til 18:40, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Ívar Dan Arnarson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 576 liður 27

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 211 frá 20.ágúst 2018, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs

    Mál 1805130 Allur ferill málsins

    Lögð fram til yfirferðar og samþykktar samþykkt um meðhöndlun úrgangs.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögur verkefnisstjóra umhverfismála og vísar samþykktinni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  2. 2. Borholur á Fáskrúðsfirði

    Mál 1806056 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sverri Þór Kristjánssyni hjá VKC, dagsettur 9. ágúst 2018, vegna borana eftir vatni á Fáskrúðsfirði. Veitustjóra falið að vinna áfram að málinu í samvinnu við bæjarstjóra.

  3. 3. Samþykkt um fráveitur

    Mál 1805126 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til yfirferðar og samþykktar samþykkt um fráveitur.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu veitustjóra að Samþykkt um fráveitur. Nefndin vísar samþykktinni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  4. 4. Samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss

    Mál 1805132 Allur ferill málsins

    Lögð fram til yfirferðar og samþykktar samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögur umhverfisstjóra og vísar samþykktinni til afgreiðslu í bæjarstjórn. Nefndin samþykkir jafnframt að samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss verði endurskoðuð af Heilbrigðisnefnd Austurlands m.a. með tilliti til úrræða við vanefndum samkvæmt mannvirkjalögum.

  5. 5. Samþykkt um hesthús og önnur gripahús í skipulögðum búfjárhverfum í Fjarðabyggð

    Mál 1805127 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samþykkt um hesthús og önnur gripahús í skipulögðum búfjárhverfum í Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.

  6. 6. Samþykkt um hundhald

    Mál 1805128 Allur ferill málsins

    Lögð fram til yfirferðar og samþykktar samþykkt um hundahald.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögur umhverfisstjóra og vísar samþykktinni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  7. 7. Samþykkt um kattahald og önnur dýr

    Mál 1805129 Allur ferill málsins

    Lögð fram til yfirferðar og samþykktar samþykkt um kattahald.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögur umhverfisstjóra og vísar samþykktinni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  8. 8. Samþykkt um fiðurfé

    Mál 1805125 Allur ferill málsins

    Lögð fram til yfirferðar og samþykktar samþykkt um fiðurfé.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögur umhverfisstjóra og vísar samþykktinni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  9. 9. Frumvarp um þjóðgarðastofnun

    Mál 1807134 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar að nýju drög að frumvarpi um nýja stofnun sem ætlað er að hafa með höndum umsýslu allra þjóðgarða á Íslandi og annarra friðlýstra svæða auk almennrar náttúruverndar. Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 16. ágúst 2018.

  10. 10. Viðbyggingaþörf við leikskóla á Eskifirði og Reyðarfirði

    Mál 1611044 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað fræðslustjóra og sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, dagsett 23. júlí 2018, um viðbyggingarþörf leikskólanna á Reyðarfirði og Eskifirði.

  11. 11. Hönnun á lóð leikskólans á Reyðarfirði

    Mál 1808059 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir forsendur hönnunar og samþykkir að samið verði við Landmótun á þeim forsendum sem lagðar voru fram. Nefndin felur sviðstjóra að ganga frá samningi í samstarfi við bæjarstjóra við Landmótun um hönnun lóðarinnar við leikskólann Lyngholt og leggja fyrir nefndina að nýju.

  12. 12. Kollur Reyðarfirði - jarðvinna vegna gatnagerðar

    Mál 1808018 Allur ferill málsins

    Lögð fram niðurstaða verðkönnunnar vegna gatnagerðar innan búfjársvæðisins Kolls á Reyðarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að gengið verði til samninga við lægstbjóðenda. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.

  13. 13. Efnistaka úr Fagradalsá - Framkvæmdaleyfi

    Mál 1808044 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn RH grafa ehf, dagsett 8. ágúst 2018, þar sem óskað er eftir leyfi til að taka allt að 8000 m3 af efni úr Fagradalsá í Reyðarfirði. Samþykki landeiganda og Fiskistofu liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að efnistaka verði leyfð og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.

  14. 14. 730 Kollur - Framkvæmdaleyfi, gatnagerð

    Mál 1808017 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 8. ágúst 2018, þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar á búfjársvæðinu Kolli í Reyðarfirði. Fyrirhuguð gatnagerð er í samræmi við deiliskipulag svæðisins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðarinnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.

  15. 15. Beiðni um framkvæmdarleyfi - göngustígur upp á Grænafell í Reyðarfirði

    Mál 1808048 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 13. ágúst 2018, þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna stígagerðar í landi Seljateigshjáleigu í Reyðarfirði. Framkvæmdin fellst í færslu hluta núverandi stígs.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi vegna stígagerðarinnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið þegar öll tilheyrandi gögn liggja fyrir.

  16. 16. 735 - Fífubarð 11 - byggingarleyfi fyrir sólpall

    Mál 1808010 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Valbjörns Júlíusar Þorlákssonar, dagsett 2. ágúst 2018, þar sem sótt er um leyfi til að gera 56 m2 sólpall með 1,8 m skjólgirðingu við hús hans að Fífubarði 11 á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.

  17. 17. 730 Fagradalsbraut 7 - Byggingarleyfi - Hesthús

    Mál 1806020 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Hreggviðar Friðbergssonar, dagsett 5. júní 2018, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 112 m2 og 457,1 m3 hesthús á lóð hans að Fagradalsbraut 7. Aðalhönnuður er Björn Sveinsson hjá Verkís. Byggingarstjóri er Björgvin Eyþórsson.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.

  18. 18. 735 Bakkastígur 10 - Fyrirspurn um byggingaráform

    Mál 1808064 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Margrétar Harðardóttur arkitekts, dagsett 14. ágúst 2018, vegna fyrirspurnar um álit nefndarinnar á byggingaráformum í tengslum við endurgerð gömlu kirkjunnar á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna byggingaráformin. Grenndarkynning nái til Túngötu 7, 9a, 11a og 11b og Bakkastígs 8, 9a, 11 og 19.

  19. 19. 740 - Umsókn um uppsetningu á auglýsingaskilti

    Mál 1808060 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Guðröðar Hákonarsonar fh. Hildibrand slf, dagsett 16. ágúst 2018, þar sem óskað er eftir leyfi til að setja upp auglýsingarskilti fyrir Beituskúrinn á snúningsplani ofan við vitann í Neskaupstað.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt uppsetningu skilta utan lóðarmarka. Einnig er bent á að umrætt snúningsplan er mögulega utan þéttbýlismarka og uppsening skiltis því óheimil samkvæmt 72. gr. laga um náttúruvend nr. 60/2013. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gera drög að reglum um skilti í Fjarðabyggð og leggja fyrir nefndina.

  20. 20. 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1703117 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla Veðurstofunnar vegna mögulegra varnarmannvirkja við ofanflóðum við skíðasvæðið í Oddsskarði, dagsett 14. ágúst 2018.

  21. 21. Vinnslusamningur vegna fasteigna og loftmyndakerfis

    Mál 1807115 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar þjónustusamningur við Loftmyndir ehf vegna stækkunar sveitarfélagsins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar samningnum til umfjöllunar í bæjarráði.