Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 210

30. júlí 2018, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Þorsteinn Sigurjónsson, embættismaður
  • Ragna Dagbjört Davíðsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 574 liður 17

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 210 frá 30.júlí 2018, samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Rótarýklúbbur Neskaupstaðar - fuglaskilti í Neskaupstað

    Mál 1805047 Allur ferill málsins

    Umhverfisstjóri leggur fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hugmyndir Rótarýklúbbsins í Neskaupstað á útfærslu fuglaskiltis við strandlengju bæjarins. Staðsetning skiltis ásamt hönnun er og verður unnin í samvinnu við umhverfisstjóra.

  2. 2. Samningar um sorphreinsun á Breiðdalsvík

    Mál 1806118 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna að þeirri tillögu sem hér var lögð fyrir.

  3. 3. Umsókn um að setja ærslabelg við Balann á Stöðvarfirði

    Mál 1807112 Allur ferill málsins

    Sótt er um leyfi til að setja ærslabelg á Balann á Stöðvarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur umhverfisstjóra að útfæra nánar staðsetningu ærslabelgs

  4. 4. Hitaveitumælar - Orkuígildi

    Mál 1807125 Allur ferill málsins

    Kynnt frumathugun og gagnaöflun á orkuígildismælingum fyrir hitaveitur sem var unnin eftir forskrift veitustjóra. Í dag er innheimt fyrir heitt vatn á Eskifirði samkvæmmt rúmmálsmælingum með rennslismælum. Athugunin snýst um orkumælingu miðað við fast bakrásarhitastig og breytingu á innheimtuaðferð fyrir notkun á heitu vatni. Veitustjóra falið að vinna áfram að málinu.

  5. 5. Ljósleiðarakerfi veitna Fáskrúðsfirði

    Mál 1806131 Allur ferill málsins

    Lögð fram ný drög að samningi við Rarik um sameign á ljósleiðarastreng á Fáskrúðsfirði. Nefndin samþykkir drögin fyrir sitt leiti og felur sviðstjóra veitna að ganga frá samningi við Rarik og leggja fyrir bæjarráð til samþykktar.

  6. 6. Eignarsjóður viðhaldsmál 2018

    Mál 1801172 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir stöðu verkefna og stöðu fjárheimildir. Sviðstjóra falið að vinna þær áfram í samræmi við umræður á fundinum

  7. 7. Frumvarp um þjóðgarðastofnun

    Mál 1807134 Allur ferill málsins

    Drög að frumvarpi um nýja stofnun sem ætlað er að hafa með höndum umsýslu allra þjóðgarða á Íslandi og annarra friðlýstra svæða auk almennrar náttúruverndar er nú komið til umsagnar í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Frestur til umsagna er til 5.september.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.