Frumvarp um þjóðgarðastofnun
Mál 1807134 Fyrst á dagskrá 30. júlí 2018, síðast 20. ágúst 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 210 liður 7
Drög að frumvarpi um nýja stofnun sem ætlað er að hafa með höndum umsýslu allra þjóðgarða á Íslandi og annarra friðlýstra svæða auk almennrar náttúruverndar er nú komið til umsagnar í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Frestur til umsagna er til 5.september.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 211 liður 9
Lögð fram til kynningar að nýju drög að frumvarpi um nýja stofnun sem ætlað er að hafa með höndum umsýslu allra þjóðgarða á Íslandi og annarra friðlýstra svæða auk almennrar náttúruverndar. Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 16. ágúst 2018.