Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 574

13. ágúst 2018, kl. 09:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 250 liður 5

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu. Bæjarráð afgreiddi mál fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2018 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1805053 Allur ferill málsins

    Framlagt yfirlit fjármálastjóra yfir rekstur málaflokka janúar - júní 2018 og skatttekjur og launakostnað janúar - júlí 2018. Yfirlitið lagt fram sem trúnaðarmál

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1808019 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað fjármálastjóra um forsendur fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2019 - 2022 auk þjóðhagsspár Hagstofu Íslands að sumri.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu.

  3. 3. Fjárhagsáætlun 2018 - viðauki 3

    Mál 1808029 Allur ferill málsins

    Sameina þarf fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps fyrir árið 2018. Fjárhagsáætlun Breiðdalshrepps er tekin inn sem viðauki við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2018 sem viðauki 3 við Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2018.

    Fjárhagsáætlun Breiðdalshrepps kemur sem viðauki við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2018.

    Fjárhagslegu áhrif sameiningarinnar við Breiðdalshrepp er þau að handbært fé Aðalsjóðs hækkar um kr. 53.662.000 og mun nema í árslok kr. 262.019.000.

    Bæjarráð staðfestir í umboði bæjarstjórnar viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2018.

  4. 4. Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt Breiðdalur

    Mál 1807140 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um feril ljósleiðaramálsins í sveitarstjórn Breiðdalshrepps. Gerð grein fyrir framvindu verkefnisins.

    Sviðsstjóra veitusviðs falið að vinna að málinu áfram í samstarfi við fjármálastjóra og bæjarritara. Tekið upp að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  5. 5. Aðalfundur Breiðdalsseturs ses 2018

    Mál 1808014 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Hákons Hanssonar þar sem boðað er til aðalfundar Breiðdalsseturs 1. september nk. Jafnframt er óskað er eftir skipan fulltrúa Fjarðabyggðar í stjórn setursins.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúar í Fjarðabyggðar í stjórninni verði Pétur Pétursson aðalmaður og Anna Margrét Birgisdóttir varamaður.

  6. 6. Samningur um sjúkraflutninga í Breiðdal og á Djúpavogi

    Mál 1804096 Allur ferill málsins

    Umræða um samninga Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands um sjúkraflutninga.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og bæjarritara að funda með forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands vegna samninga um sjúkraflutninga.

  7. 7. Í skugga valdsins

    Mál 1712003 Allur ferill málsins

    Skipun fulltrúa í starfshóps í Skugga valdsins og #metoo. Endurskipa þarf í starfshópinn og ljúka vinnu sem hópnum var falin.

    Bæjarráð samþykkir að starfshópinn skipi Sigurður Ólafsson, Eydís Ásbjörnsdóttir og Dýrunn Pála Skaftadóttir. Formaður hópsins er Eydís Ásbjörnsdóttir. Með hópnum starfa bæjarstjóri, bæjarritari og félagsmálastjóri.

  8. 8. Siðareglur kjörinna fulltrúa

    Mál 1805176 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðun á siðareglum kjörinna fulltrúa.

    Vísað til vinnu starfshóps í skugga valdsins og #metoo.

  9. 9. Siðareglur stjórnenda

    Mál 1805194 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðun á siðareglum stjórnenda.

    Vísað til vinnu starfshóps í skugga valdsins og #metoo.

  10. 10. Móttaka flóttamanna á árinu 2018

    Mál 1710151 Allur ferill málsins

    Stofnun hóps embættismanna innan bæjarkerfisins, sem hefur það verkefni að styðja verkefnastjóra vegna móttöku flóttafólks.

    Samþykkt að hópinn skipi bæjarritari, félagsmálastjóri, fræðslustjóri og fjármálastjóri.

  11. 11. Samkomulag um stuðning hollvinasamtaka

    Mál 1807074 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Hollvinasamtökum um samkomulag vegna endurgerðar gamla barnaskólans á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir framlagðan samning við Hollvinasamtök barnaskólans á Eskifirði um endurgerð skólabyggingarinnar með þeim fyrirvara að fasteigninni hafi verið afsalað til Fjarðabyggðar fyrir vikulokin. Bæjarstjóra falið að undirrita samkomulag.

  12. 12. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi

    Mál 1804081 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi þar sem kallað er eftir tillögum að ályktunum fyrir aðalfund ársins 2018.

    Farið yfir tillögur Fjarðabyggðar að ályktunum. Forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs falið að vinna þær áfram og leggja fyrir stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

  13. 13. Móttaka gesta á Franska daga og Íslandsdagar í Gravelines 2018

    Mál 1807078 Allur ferill málsins

    Framlagt boð Gravelines á Íslandsdaga þann 28. til 30. september 2018.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar á Íslandsdögum í Gravelines verði Sigurður Ólafsson, Pálína Margeirsdóttir ásamt fulltrúa frá Frönskum dögum.

  14. 14. Samþykkt um afgeiðslur byggingarnefndar

    Mál 1805124 Allur ferill málsins

    Síðari umræða. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt samþykkt um afgreiðslur bygginganefndar, fyrir sitt leyfi, og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.

    Bæjarráð staðfestir samþykkt um afgreiðslur byggingarnefndar í umboði bæjarstjórnar.

  15. 15. Kvikmyndin - Hvítur,hvítur dagur - umhverisáhrif í kvikmyndatöku

    Mál 1808024 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf umhverfisstjóra er varðar kvikmyndatökustað í Oddsskarði og á Fáskrúðsfirði vegna gerðar kvikmyndarinnar Hvítur, hvítur dagur.

  16. 16. 425.mál - til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða,

    Mál 1804108 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf frá Seyðisfjarðarkaupstað um skipan Elfu Hlínar Pétursdóttur í svæðisráð vegna strandsvæðisskipulags Austfjarða.

  17. 17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 210

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 210 frá 30.júlí 2018, samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

    1. 17.4 Hitaveitumælar - Orkuígildi1807125
  18. 18. Barnaverndarfundagerðir 2018

    Mál 1801097 Allur ferill málsins

    Fundargerðir barnaverndarnefndar, nr. 86 og nr. 87 frá 31.júlí og 7.ágúst 2018, samþykktar í umboði bæjarstjórnar.