735 Bakkastígur 10 - Fyrirspurn um byggingaráform
Mál 1808064 Fyrst á dagskrá 20. ágúst 2018, síðast 22. október 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 211 liður 18
Lagt fram bréf Margrétar Harðardóttur arkitekts, dagsett 14. ágúst 2018, vegna fyrirspurnar um álit nefndarinnar á byggingaráformum í tengslum við endurgerð gömlu kirkjunnar á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna byggingaráformin. Grenndarkynning nái til Túngötu 7, 9a, 11a og 11b og Bakkastígs 8, 9a, 11 og 19.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 217 liður 8
Lagt fram að nýju eftir grenndarkynningu bréf Margrétar Harðardóttur arkitekts, dagsett 14. ágúst 2018, vegna fyrirspurnar um álit nefndarinnar á byggingaráformum í tengslum við endurgerð gömlu kirkjunnar á Eskifirði. Engar athugasemdir voru gerðar við byggingaráformin í grenndarkynningu.
Álit eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vegna byggingaráforma og endurgerðar gömlu kirkjunnar á Eskifirði er því jákvætt.