NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 217
22. október 2018, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 586 liður 45
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 217 frá 22.október 2018, lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Dagskrá
-
1. Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2018
Mál 1810101 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga umhverfisstjóra að umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, dagsett 19. október 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögurnar og felur umhverfisstjóra að sækja um styrki í sjóðinn.
-
2. Hreinsun strandlengju Fjarðabyggðar - umsókn um styrk til Alcoa foundation
Mál 1805245 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Alcoa Foundation, dagsett 17. október 2018, vegna veitts styrks í verkefnið "Hreinsun strandlengjunnar". Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um verkefnið, dagsett 16. október 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar úthlutninni og felur umhverfisstjóra að hrinda verkefninu í framkvæmd í samráði við sviðsstjóra framkvæmdasviðs og verkefnefnastjóra umhverfissmála.
-
3. Bólusetning gegn garnaveiki
Mál 1810097 Allur ferill málsins
Lögð fram fyrirspurn Sigurðar Borgars Arnaldssonar, Gunnlaugs Ingólfssonar og Guðnýar Harðardóttur f.h. bænda í Breiðdal, dagsett 3. október 2018, er varðar kostnað við akstur dýralæknis vegna lögbundinnar bólusetningar á garnaveiki.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar fyrirspurninni til umfjöllunar landbúnaðarnefndar.
-
4. Ársfundur Umhverfisstofnunar,náttúrverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa 2018
Mál 1810040 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar béf Umhverfisstofnunar, dagsett 8. október 2018, vegna 21. ársfundar náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa sem haldinn verður 8. nóvember nk.
Áhersla fundarins er hlutverk náttúruverndarnefnda og sveitarfélaga - friðlýsingarvinnan framundan.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að sækja fundinn. Umhverfisstjóra er falið að skila inn ársskýrslu náttúruverndarnefndar sveitarfélagsins.
-
5. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 1810136 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 17. október 2018, vegna endurskoðunar Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. 740 Hafnarbraut 32A - byggingarleyfi, varmadæla
Mál 1810146 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Jóns Gunnars Jónssonar, dagsett 19. október 2018, þar sem sótt er um leyfi til setja upp „íspinna“ varmadælu við suð-austur horn húss hans að Hafnarbraut 32 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
7. 750 Hlíðargata 30 - byggingarleyfi - sólskáli
Mál 1809117 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Magnúsar Þorra Magnússonar, dagsett 19. september 2018, þar sem sótt er um leyfi byggja 28,9 m2 og 91,8 m3 sólskála við hús hans að Hlíðargötu 30 á Fáskrúðsfirði. Aðalhönnuður er Björn Sveinsson hjá Verkís.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráform og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
8. 735 Bakkastígur 10 - Fyrirspurn um byggingaráform
Mál 1808064 Allur ferill málsins
Lagt fram að nýju eftir grenndarkynningu bréf Margrétar Harðardóttur arkitekts, dagsett 14. ágúst 2018, vegna fyrirspurnar um álit nefndarinnar á byggingaráformum í tengslum við endurgerð gömlu kirkjunnar á Eskifirði. Engar athugasemdir voru gerðar við byggingaráformin í grenndarkynningu.
Álit eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vegna byggingaráforma og endurgerðar gömlu kirkjunnar á Eskifirði er því jákvætt.
-
9. Gjaldskrá félagsheimila 2019
Mál 1810064 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir félagsheimilin vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs.
-
10. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2019
Mál 1810062 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, framkvæmdaleyfis- og þjónustugjöld skipulags- og byggingarfulltrúa vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs. Nefndin samþykkir jafnframt að breyta nafni gjaldskráarinnar í gjaldskrá skipulags- og byggingarmála. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 3.8%.
-
11. Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2019
Mál 1810066 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir fjarvarmaveitu vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs.
-
12. Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2019
Mál 1810067 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir fráveitu vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 3,8%.
-
13. Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 2019
Mál 1810069 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 3,8%.
-
14. Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 2019
Mál 1810073 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að breyta ekki gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald vegna 2019. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
15. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2019
Mál 1810084 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur verkefnisstjóra umhverfismála að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
16. Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2019
Mál 1810087 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir vatnsveitu vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 3,8%.
-
17. Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 2019
Mál 1810068 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óbreytta gjaldskrá fyrir ljósleiðaraheimtaugar í dreifbýli vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs.
-
18. 172.mál - til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023
Mál 1810098 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni frá nefndarsviði Alþingis, dagsett 12. október 2018, um umsögn um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019-2023, 172. mál.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
-
19. 173.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimmtán ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 -2033
Mál 1810099 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni frá nefndarsviði Alþingis, dagsett 12. október 2018, um umsögn um tillögu til þingsályktun fyrir árin 2019-2023, 173. mál.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
-
20. Starfs- og fjárhagsáætlun eigna- skipulags- og umhverfisnefndar
Mál 1809014 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri framkvæmdasviðs og skipulags- og byggingarfulltrúi hafa lokið vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Starfs- og kostnaðaráætlanir lagðar fram til umræðu og samþykktar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagðar starfs- og fjárhagsáætlanir og vísar til bæjarráðs til staðfestingar.