Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 2019
Mál 1810073 Fyrst á dagskrá 22. október 2018, síðast 29. október 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 217 liður 14
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að breyta ekki gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald vegna 2019. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 586 liður 24
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að breyta ekki gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald vegna 2019. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að gjaldskráin verði óbreytt út árið 2019.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins samþykkir að vísa framlögðum gjaldskrám til fyrstu umræðu en áskilur sér rétt til þess að koma með breytingartillögur á fyrirliggjandi gjaldskrám milli umræðna um fjárhagsáætlun.