NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 216
5. október 2018, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 584 liður 10
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 216 frá 8.október 2018, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 255 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 8.október sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 730 Heiðarvegur 5 - byggingarleyfi, viðbygging leikskóla
Mál 1809157 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 26. september 2018, þar sem sótt er um leyfi til að byggja við og breyta að hluta innra skipulagi Leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði þannig að þar verði gert ráð fyrir sex deilda leikskóla fyrir allt að 110 nemendur. Aðalhönnuður er Sigurður Harðarson hjá Batteríið Arkitektar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna byggingaráformin. Grenndarkynning nái til Heiðarvegar 6, 8, 10 og 12, Lundargötu 3 og Holtagötu 5.
-
2. Götulýsing - Rarik
Mál 1803100 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar að ítreka við Rarik að án tafar verði farið í vinnu við að skipta út perum í gatnalýsingu í ljósastaurum í sveitarfélaginu að undanskildum Reyðarfirði þar sem Rafveita Reyðarfjarðar sér um peruskipti. Jafnframt leggur bæjarráð til við eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að fara í alvarlega skoðun á "LED" lýsingu gatnakerfisins í sveitarfélaginu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að ræða við Rarik um götulýsingu.
-
3. Málefni tækjamiðstöðvar 2018
Mál 1803092 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fram lagða tillögu sviðstjóra og felur fjármálastjóra að útfæra hana og leggja fyrir bæjarráð til endanlegrar afgreiðslu.
-
4. Vinnuskóli 2018
Mál 1801157 Allur ferill málsins
Breyting á reglum vinnuskóla Fjarðabyggðar lögð fram til samþykktar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytinguna á 4 grein reglnanna er varðar bann við notkun tóbaks, rafretta og vímuefna á vinnutíma vinnuskólans.
-
5. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar
Mál 1805134 Allur ferill málsins
Vegna sameiningar Fjarðabyggðar og Breiðdals þarf að taka umferðarsamþykkt fyrir og samþykkja í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Vísa samþykktinni að því loknu til bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tók samþykktina fyrir og samþykktir umferðarsamþykktina og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.
-
6. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU-nefndar í A hluta 2019
Mál 1809019 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi starfs- og fjárhagsáætlun ársins 2019, sviðstjóri fór yfir áætlanirnar fyrir árið 2019. Nefndin felur sviðstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
-
7. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU-nefndar fyrir veitusviðs 2019
Mál 1809016 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi starfs- og fjárhagsáætlun ársins 2019, sviðstjóri fór yfir áætlanirnar fyrir árið 2019. Nefndin felur sviðstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.