NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 215
1. október 2018, kl. 16:00 til 18:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
- Valur Sveinsson, embættismaður
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
- Þorsteinn Sigurjónsson, embættismaður
- Ragna Dagbjört Davíðsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 254 liður 4
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 1.10.2018 staðfest með 8 atkvæðum. Bæjarstjórn vísar til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs dagskrárlið 19 í fundargerð nefndarinnar.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU-nefndar í A hluta 2019
Mál 1809019 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri Fjarðabyggðar kynnti framlagða ramma fjárhagsáætlunar 2019.
Nefndin felur sviðstjóra undirbúning starfsáætlunar og tillögu að
fjárhagsáætlun 2019 og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU-nefndar fyrir veitusviðs 2019
Mál 1809016 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri Fjarðabyggðar kynnti framlagða ramma fjárhagsáætlunar 2019.
Nefndin felur sviðstjóra undirbúning starfsáætlunar og tillögu að
fjárhagsáætlun 2019 og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
3. 730 - Mánagata 3 - Byggingarleyfi - Breytingar á fasteign og lóð auk nýbyggingu bílskúrs
Mál 1807024 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju, eftir grenndarkynningu, byggingarleyfisumsókn Gunnars Viðars Þórarinssonar, dagsett 6. júlí 2018, þar sem sótt er um leyfi til að gera lítilsháttar breytingar á íbúðarhúsi hans að Mánagötu 3 á Reyðarfirði ásamt byggingu bílskúrs og sólpalls. Ein athugasemd barst vegna grenndarkynningarinnar. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa vegna athugasemda dagsett 28. september 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fellst á, fyrir sitt leyti, að íbúðarhúsinu við Mánagötu 3 verði breytt og þar byggður pallur sbr. framlagðar teikningar en getur ekki samþykkt staðsetningu og stærð bílskúrs. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
4. 730 Seljateigshjáleiga - Byggingarleyfi, niðurrif
Mál 1809159 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sigurbjörns Marinóssonar, dagsett 26. september 2018, þar sem sótt er um leyfi til að fella út úr fasteignaskrá véla/verkfærageymslu í landi Seljateigshjáleigu við Reyðarfjörð sem eyðilagðist í óveðri fyrir nokkrum árum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
5. 750 Skólavegur 53 - byggingarleyfi
Mál 1810002 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ríkiseigna, dagsett 28. september 2018, þar sem sótt er um leyfi til að breyta staðsetningu hurða innanhúss ásamt brunahólfana í lögreglustöðinni við Skólaveg 53 á Fáskrúðsfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
6. 750 Búðavegur 35 - afturköllun byggingarleyfis
Mál 1809106 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að bréfi Fjarðabyggðar vegna bréfs lögmanns eiganda efri hæðar Búðavegar 35 á Fáskrúðsfirði varðandi ógildingu byggingarleyfis.
-
7. 740 Fannardalur - deiliskipulag frístundabyggðar
Mál 1802111 Allur ferill málsins
Auglýsingartími er liðinn. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands og Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti deiliskipulag frístundabyggðar í Fannardal. Uppdráttur með greinagerð, dags. 1. ágúst 2018. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
8. Laggning ökutækja í Neskaupstað
Mál 1809121 Allur ferill málsins
innsent erindi frá íbúa að Hlíðargötu 27 um lagningu á Hlíðargötu
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og felur sviðstjóra að ræða við bréfritara og vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
9. 740 Deiliskipulag Urðarbotna
Mál 1712069 Allur ferill málsins
Lögð fram skipulags- og matslýsing deiliskipulags Urðarbotna og varnarmannvirkja ofan byggðar á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir skipulags- og matslýsingu fyrir sitt leyti. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
10. Umhverfisviðurkenning 2018
Mál 1808115 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri kynnti fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd stöðu tilnefninga til umhverfisviðurkenningar Fjarðabyggðar 2018 ásamt hverjir væru í dómnefnd og dagskrá afhendingar.
-
11. Náttúrusvæði í Fjarðabyggð
Mál 1607034 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri lagði fyrir eigna, skipulags- og umhverfisnefnd samantekt fundaði með Umhverfisráðherra þann 28. ágúst 2018.
Nefndin felur umhverfisstjóra að koma á kynningarfundi með friðlýsingateymi UST ásamt fulltrúum frá umhverfisráðuneyti með fulltrúum Fjarðabyggðar.
-
12. Fjallskil 2018
Mál 1808038 Allur ferill málsins
Fjallskilaboð ársins 2019 lagt fram til kynningar.
-
13. Reglur um leigulönd
Mál 1805143 Allur ferill málsins
Lagðar fram til samþykktar reglur um leigulönd í tengslum við sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
-
14. Dauður búfénaður og sláturúrgangur
Mál 1809089 Allur ferill málsins
Nokkrir íbúar í Breiðdal hafa haft samband við Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar og beðið um að gámur sem ætlaður væri undir dýrahræ verði staðsettur á aðgengilegum stað fyrir bændur. Ef ákveðið verður að setja gám undir þannig úrgang yrði hér einungis um tímabundna lausn að ræða, tvo mánuði að hausti og tvo að vori eða samtals 4 mánuði. Lausnin yrði sett upp til reynslu og einungis ætluð fyrir þá sem þurfa að losna við dýrahræ. Sorpmiðstöð ber að taka við dýrahræum en ekki er æskilegt að komið sé með þann úrgang á söfnunarstöð. Gámurinn yrði staðsettur í landi Heydala við afleggjara að Heydalamelum, sjá hér neðar undir yfirskriftinni staðsetning.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu verkefnastjóra umhverfismála og felur verkefnastjóra að vinna málið áfram og leggja aftur fyrir nefndina að loknu tilraunar tímabili.
-
15. Vatnsveita 2018
Mál 1801155 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísar málinu til eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar til umfjöllunar og úrvinnslu.
Sviðstjóri veitusviðs fór yfir málið og mun svara erindinu.
-
16. Búðavegur 39a Fáskrúðsfirði
Mál 1809128 Allur ferill málsins
Tekið fyrir erindi eiganda Búðavegs 39a, sviðstjóri fór yfir málið.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að skoða málið og leggja fyrir að nefndina að nýju.
-
17. Nýting vatns úr borholu við Sléttu
Mál 1803148 Allur ferill málsins
Sviðstjóri veitusviðs lagði fram samkomulag um nýtingu á heitu vatni úr rannsóknarholu á Sléttu. Allir aðilar eru búnir að samþykkja og leggur til að nefndin samþykki samkomulagið. Nefndin samþykkir samkomulagið fyrir sitt leiti.
-
18. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018
Mál 1802079 Allur ferill málsins
Fundargerðir 143 fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018 lögð fram til kynningar
-
19. Tilkynning um meðferð máls - Meint ólöglegt athæfi á Stöðvarfirði
Mál 1807058 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar niðurstöðu stofnunarinnar.