Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Dauður búfénaður og sláturúrgangur

Mál 1809089 Fyrst á dagskrá 1. október 2018, síðast 4. október 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Umhverfi og veitur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 215 liður 14

    Nokkrir íbúar í Breiðdal hafa haft samband við Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar og beðið um að gámur sem ætlaður væri undir dýrahræ verði staðsettur á aðgengilegum stað fyrir bændur. Ef ákveðið verður að setja gám undir þannig úrgang yrði hér einungis um tímabundna lausn að ræða, tvo mánuði að hausti og tvo að vori eða samtals 4 mánuði. Lausnin yrði sett upp til reynslu og einungis ætluð fyrir þá sem þurfa að losna við dýrahræ. Sorpmiðstöð ber að taka við dýrahræum en ekki er æskilegt að komið sé með þann úrgang á söfnunarstöð. Gámurinn yrði staðsettur í landi Heydala við afleggjara að Heydalamelum, sjá hér neðar undir yfirskriftinni staðsetning.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu verkefnastjóra umhverfismála og felur verkefnastjóra að vinna málið áfram og leggja aftur fyrir nefndina að loknu tilraunar tímabili.

  2. Bæjarstjórn, fundur 254 liður 4.14

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 215“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is