Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 584

15. október 2018, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 255 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15.október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stjórnkerfisnefnd 2018

    Mál 1804119 Allur ferill málsins

    Umræða um stjórnkerfi og skipulag sveitarfélagsins.

    Stjórnkerfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að veitusvið Fjarðabyggðar verði fellt niður í skipuriti og fellt undir framkvæmda- og umhverfissvið og nafni sviðsins breytt í framkvæmdasvið, yfirstjórn hjúkrunarheimila flytjist frá félagsmálastjóra til fjármálastjóra og starf umhverfisstjóra færist frá framkvæmda- og umhverfissviði til skipulags- og byggingarmála. Jafnframt mun stjórnkerfisnefnd starfa áfram.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1808019 Allur ferill málsins

    Forsendur fjáhagsáætlunar 2019 ræddar eftir samtöl við nefndarformenn, sviðsstjóra og forstöðumenn. Fjármálastjóri gerði nánari grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun á fundinum.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2019.

  3. 3. Kauptilboð í Sólvelli 8b Breiðdalsvík

    Mál 1810047 Allur ferill málsins

    Sala íbúða í Breiðdal. Fyrir liggur tilboð í Sólvelli 8b á Breiðdalsvík. Tilboðsfrestur er til kl. 23:50 þann 15. október 2018.

    Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra að gera gagntilboð vegna sölu á eigninni.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2019

    Mál 1809015 Allur ferill málsins

    Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun og áherslur í rekstri málaflokka atvinnumála og sameiginlegs kostnaðar, fyrir árið 2019.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2019.

    Starfsáætlun atvinnumála er vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar.

  5. 5. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar

    Mál 1805134 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umferðarsamþykkt fyrir sameinað sveitarfélag.

    Bæjarráð vísar umferðarsamþykkt til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  6. 6. Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla

    Mál 1606146 Allur ferill málsins

    Umræður um uppsetningu og rekstur rafhleðslustöðvar í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að fylgja eftir verkefni og fara yfir stöðu þess.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að skoðað verði sem fyrst að sveitarfélagið selji eða losi eignarhald sitt á væntanlegum hleðslustöðvum enda á sveitarfélagið ekki að vera í samkeppnisrekstri við fyrirtæki á svæðinu.

  7. 7. Vinnuskóli 2018

    Mál 1801157 Allur ferill málsins

    Breyting á reglum vinnuskóla Fjarðabyggðar lagðar fram til samþykktar en eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt breytingu á 4. grein reglnanna, er varðar bann við notkun tóbaks, rafretta og vímuefna á vinnutíma vinnuskólans.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  8. 8. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 24.október 2018

    Mál 1810016 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Heilbrigðiseftirlits Austurlands en fundurinn verður haldinn á Egilsstöðum 24. október nk. kl 13:30

    Bæjarráð samþykkir að fela Karli Óttari Péturssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundi. Jafnframt samþykkir bæjarráð að tilnefna Jón Björn Hákonarson sem aðalmann í stjórn Heilbrigðiseftirlits Austurlands og Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttur sem varamann hans. Þá er Kristín Ágústsdóttir tilnefnd sem aðalfulltrúi og Helga Hrönn Melsteð sem varafulltrúi fyrir hönd náttúruverndarnefnda.

  9. 9. Byggðaráðstefnan 2018 í Stykkishólmi 16.-17. október nk.

    Mál 1810051 Allur ferill málsins

    Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Stykkishólmsbær, standa fyrir ráðstefnu um byggðaþróun og umhverfismál - hvernig getur blómleg byggð og náttúruvernd farið saman - dagana 16. og 17. október 2018 á Fosshóteli Stykkishólmi.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúi Fjarðabyggðar á ráðstefnunni verði atvinnu- og þróunarstjóri.

  10. 10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 216

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 216 frá 8.október 2018, lögð fram til kynningar.

  11. 11. Fræðslunefnd - 61

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 61 frá 9.október 2018, lögð fram til kynningar.

  12. 12. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 5 frá 8.október 2018, lögð fram til kynningar.

  13. 13. Íþrótta- og tómstundanefnd - 53

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 53 frá 9.október 2018, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Félagsmálanefnd - 115

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 115 frá 9.október 2018, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 7

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna, nr. 7 frá 8.október 2018, lögð fram til kynningar.

  16. 16. Barnaverndarfundagerðir 2018

    Mál 1801097 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnarverndarnefndar, nr. 90 frá 8.október 2018, lögð fram til kynningar.