Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 585

22. október 2018, kl. 08:30 til 10:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1808019 Allur ferill málsins

    Fram haldið vinnu við fjárhagsáætlun 2019. Farið yfir stöðu áætlunarinnar og gerð grein fyrir frávikum, tillögum nefnda í rekstri og fjárfestingu.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við Fjárhagsáætlunargerð 2019.

  2. 2. Árshlutauppgjör Breiðdalshrepps 30.6. 2018

    Mál 1810137 Allur ferill málsins

    Framlagt árshlutauppgjör Breiðdalshrepps til 30. júní 2018.

    Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

  3. 3. Húsnæðismál bæjarskrifstofu

    Mál 1810145 Allur ferill málsins

    Skipan fulltrúa í starfshóp um framtíðarskipan húsnæðismála bæjarskrifstofu . Lagt er til að starfshópinn skipi sjö fulltrúar. Fjórir fulltrúar embættismanna, tveir fulltrúar frá meirihluta og einn fulltrúi frá minnihluta.

    Skipan vísað til næsta fundar bæjarráðs ásamt gerð erindisbréfs.

  4. 4. 100 ára fullveldisafmæli

    Mál 1705146 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað forstöðumanns menningarstofu um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Austurlands þann 1. desember nk. í Tónlistarmiðstöð. Menningarstofan styrkir tónleikana en jafnframt er óskað er eftir framlagi til veitinga og sögustundar fyrir börn í tilefni af 100 ár fullveldisafmæli Íslands sem er þennan dag. Umbeðin fjárhæð er 390.000 kr.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja veitingar og sögustund.

  5. 5. Kjara- og launamál 2018

    Mál 1805084 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar yfirlýsing frá Samninganefnd sveitarfélaga vegna ályktana Skólastjórafélags Íslands.

  6. 6. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2018

    Mál 1802007 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins frá 10.október 2018, lögð fram til kynningar.

  7. 7. Gjaldskrá fasteignagjalda 2019

    Mál 1810063 Allur ferill málsins

    Farið yfir forsendur fyrir álagningu fasteignagjalda á næsta ári.

    Vísað til áframhaldandi vinnslu fjárhagsáætlunar 2019.

  8. 8. Félagsmálanefnd - 116

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 116 frá 16.október 2018, lögð fram til afgreiðslu. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Hafnarstjórn - 204

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 204 frá 15.október 2018, lögð fram til afgreiðslu. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.