Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 204

15. október 2018, kl. 16:00 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 585 liður 9

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 204 frá 15.október 2018, lögð fram til afgreiðslu. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Stefnumótun vegna skemmtiferðaskipa 2018

    Mál 1807064 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn óskaði eftir afstöðu menningar- og nýsköpunarnefndar til málefna skemmtiferðaskipa. Menningar-og nýsköpunarnefnd telur rétt að bíða eftir niðurstöðum frá vinnufundi hagsmunaaðila og eins telur nefndin vanta betri upplýsingar um mengun skipanna í umhverfinu. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að undirbúa vinnufund með hagsmunaaðilum sem tengjast komu skemmtiferðaskipa, stefnt verður á að hafa fundinn fimmtudaginn 1. nóvember. Framkvæmdastjóra falið að afla gagna um mengun skipa sem koma til hafnar.

  2. 2. Seatrade Cruise Med fundur í Lissabon 19-20. september 2018

    Mál 1804147 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna fór yfir þátttöku í Sea Trade sýningu fyrir skemmtiferðaskipahafnir.

  3. 3. Samstarfsyfirlýsing um framkvæmd vigtarmála

    Mál 1805033 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samstarfsyfirlýsing Hafnasambands Íslands og Fiskistofu um framkvæmd vigtunar og eftirlits.

  4. 4. Landtengingar skipa

    Mál 1809174 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindi Eskju um aflmeiri landtengingar fyrir skip í landlegu og felur framkvæmdastjóra að undirbúa framkvæmdir við öflugri tengingar fyrir fiskiskip og fara yfir málin á höfnum Fjarðabyggðar.

  5. 5. Aðalfundarboð 2018 - Ársreikningur 2017

    Mál 1810094 Allur ferill málsins

    Borist hefur boð á aðalfund Fiskmarkaðs Austurlands 2018. Stjórn felur Framkvæmdastjóra að fara með umboð hafnarstjórnar á fundinum.

  6. 6. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1808161 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn vísar drögum að gjaldskrá til frekari umfjöllunar á næsta hafnarstjórnarfundi en tekur undir tillögur framkvæmdastjóra um gjaldskrárbreytingar.

  7. 7. Umsókn um hluta af lóðar í Neskaupstað

    Mál 1805256 Allur ferill málsins

    Fiskmarkaður Austurlands sækir um stærri lóð á hafnarsvæði í Neskaupstað en fyrri hugmyndir gerðu ráð fyrir. Hafnarstjórn tekur jákvætt í umsóknina en mun fresta afgreiðslu til næsta fundar hafnarstjórnar.

  8. 8. 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði

    Mál 1701099 Allur ferill málsins

    Óskað hefur verið eftir afstöðu hafnarstjórnar til beiðni Eskju um stækkun Lóðar við Leirubakka 4. Hafnarstjórn samþykkir beiðni Eskju um breytingu á lóð.