Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 203

10. september 2018, kl. 16:00 til 17:40, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun

    Mál 1210091 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna fór yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir við Mjóeyrarhöfn. Ekki eru komin leyfi fyrir ferkari efnistöku af hafnsbotni og því verður að óbreyttu ekki mögulegt að framkvæma alla þá vinnu sem áformað var á árinu. Framkvæmdastjóra hafna falið að ýta áfram á framgang leyfismála.

  2. 2. Útsýnispallur við Norðfjarðarvita

    Mál 1808154 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fyrir sitt leiti tekur vel í erindi um byggingu útsýnispalls við Norðfjaraðrvita svo fremi sem gætt sé að því skyggja ekki á sýn til innsiglingarmerkja frá sjó.

  3. 3. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2018

    Mál 1801005 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands nr 405 lögð fram til kynningar ásamt fundarboði á Hafnasambandsþing 2018.

  4. 4. Grjótvarnir í Fjarðabyggð

    Mál 1503195 Allur ferill málsins

    Í fjárhagsáætlun ársins 2018 var gert ráð fyrir að vinna að grjótvörnum. Á tveimur stöðum á Eskifirði er sérstök þörf fyrir viðbótarvinnu, annars vegar fyrir neðan Strandgötu 68 þar sem þörf er á fyllingu og nýrri grjótvörn en hins vegar í nágrenni sjóminjasafnsins þar sem þörf er á að endurraða grjóti í grjótvarnarkanti. Hafnarstjórn samþykkir að fara í frekari vinnu við grjótvarnir sem verði fjármagnaðar með millifærslu frá öðrum liðum.

  5. 5. Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði

    Mál 1503131 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tilboð Nestaks ehf í vinnu við þekju og hafnarkant við netagerð Fjarðanets í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við Nestak ehf um framkvæmdina.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarsjórnar 2019 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1806027 Allur ferill málsins

    Unnin hafa verið fyrstu drög að rekstraráætlun hafnarsjóðs fyrir árið 2019. Áframhald umræðna um fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára fjárfestingaráætlun, vísað til frekari umræðu við gerð fjárhagsáætlunar.

  7. 7. 760 Löndunarkrani Breiðdalsvíkurhöfn

    Mál 1808031 Allur ferill málsins

    Þörf er á endurnýjun á löndunarkrönum á Breiðdalsvík og í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir að kaupa tvo nýja löndunarkrana og felur framkvæmdastjóra að ganga frá kaupunum.