Bæjarráð, fundur 583
8. október 2018, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 255 liður 2
Fundargerðir bæjarráð teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráð frá 8.október sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Stjórnkerfisnefnd 2018
Mál 1804119 Allur ferill málsins
Umræða um stjórnkerfi og skipulag sveitarfélagsins.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarsjórnar 2019 ásamt langtímaáætlun
Mál 1806027 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun hafnarsjóðs og áherslur í rekstri málaflokksins fyrir árið 2019 með formanni hafnarstjórnar og framkvæmdastjóra hafna.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2019
Mál 1809009 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun í félagsmálum og áherslur í rekstri málaflokksins fyrir árið 2019 með formanni félagsmálanefndar og félagsmálastjóra.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2019
Mál 1809010 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun í barnaverndarmálum og áherslur í rekstri málaflokksins fyrir árið 2019 með formanni barnaverndarnefndar og félagsmálastjóra.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun Eigna- umhverfis- og skipulagsnefndar
Mál 1809014 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og byggingarmála fyrir árið 2019 með skipulags- og byggingarfulltrúa.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.
-
6. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2019
Mál 1809015 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun slökkviliðs fyrir árið 2019 með slökkviliðsstjóra. Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.
-
7. Fasteignamat 2019
Mál 1806005 Allur ferill málsins
Framlögð greinargerð fjármálastjóra um áhrif lækkunar fasteignagjalda á árinu 2019 sem nemur hækkun fasteignamats fyrir árið á milli áranna 2018 og 2019. Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar.
-
8. Samstarfssamningur vegna Landsmóts 50 2019
Mál 1810018 Allur ferill málsins
Fyrir liggur drög að samstarfssamningi milli UMFÍ, ÚÍA og Fjarðabyggðar vegna Landsmóts 50 sem haldið verður í Neskaupstað í júní 2019. Reiknað er með að undirritun samningsins fari fram í Neskaupstað í nóvember en þá er von á formanni UMFÍ Hauki Valtýssyni.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
9. Tilkynning um meðferð máls - Meint ólöglegt athæfi á Stöðvarfirði
Mál 1807058 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn vísar til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs dagskrárlið 19 í fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar þar sem lagt er fram bréf Umhverfisstofnunar.
Bæjarráð lýsir furðu sinni á inntaki erindis Umhverfisstofnunar og fordæmir afgreiðslu og ávítur stofnunarinnar. Bæjarráð ásamt bæjarstjóra óskar eftir fundi með forstjóra Umhverfisstofnunar til að fara yfir samskipti og ferla mála stofnunarinnar.
-
10. Niðurfelling forkaupsréttar Fjarðabyggðar á Læknishúsinu á Fáskrúðsfirði
Mál 1808076 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki við leigusamning um Franska safnið í franska spítalanum á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð samþykkir viðauka leigusamnings og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
11. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 2022
Mál 1806029 Allur ferill málsins
Skipun Fjarðabyggðar í stýrihóp háskólaseturs.
Lagt er til að Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri taki sæti aðalmanns Fjarðabyggðar í stýrihóp háskólaseturs í stað Einars Más Sigurðssonar.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að Karl Óttar Péturssonar bæjarstjóri verði aðalmaður í stýrihóp háskólaseturs eftir næsta fund stýrihópsins.