Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 582

5. október 2018, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónssion.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 255 liður 1

    Fundargerðir bæjarráð teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Rúnar Már Gunnarsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Karl Óttar Pétursson.

    Fundargerð bæjarráð frá 5.október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2019

    Mál 1809012 Allur ferill málsins

    Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum og áherslur í rekstri málaflokksins fyrir árið 2019 með formanni fræðslunefndar og fræðslustjóra.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefnd 2019

    Mál 1808025 Allur ferill málsins

    Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun í íþrótta- og tómstundamálum og áherslur í rekstri málaflokksins fyrir árið 2019 með formanni íþrótta- og tómstundanefndar, fræðslustjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun Eigna- umhverfis- og skipulagsnefndar

    Mál 1809014 Allur ferill málsins

    Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun í umhverfis- og framkvæmdamálum og áherslur í rekstri málaflokka sem heyra undir nefndina fyrir árið 2019 með formanni eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2019

    Mál 1809013 Allur ferill málsins

    Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun í menningar- og nýsköpunarmálum og áherslur í rekstri málaflokksins fyrir árið 2019 með formanni menningar- og nýsköpunarnefndar og bæjarritara.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2019

    Mál 1809015 Allur ferill málsins

    Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun sameiginlegs kostnaðar og atvinnumála og áherslur í rekstri málaflokkanna fyrir árið 2019 með bæjarráði, fjármálastjóra og bæjarritara.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2019.