Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 581

1. október 2018, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 254 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 1. október sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Greiðsluáætlun frá Jöfnunarsjóði vegna sameiningar sveitarfélaganna.

    Mál 1805015 Allur ferill málsins

    Framlögð greiðsluáætlun framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sameiningar sveitarfélaganna.

  2. 2. Reglur um styrki til menningarstarfsemi

    Mál 1805151 Allur ferill málsins

    Menningar- og nýsköpunarnefnd vísaði til bæjarráðs vinnureglum um úthlutun menningarstyrkja til yfirferðar og samþykktar í sameinuðu sveitarfélagi.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Erindi um fyrirhugaðar framkvæmdir við Samkomuhús Stöðvarfjarðar

    Mál 1809147 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá stjórn Salthúsmarkaðarins á Stöðvarfirði sem varðar fyrirhugaðar framkvæmdir við Samkomuhúsið á Stöðvarfirði.

    Bæjarráð þakkar erindið en framkvæmdir hefjast þegar starfsemi markaðarins hefur lokað. Sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs falið að ræða við bréfritara.

  4. 4. Ákvörðun um framtíðarskipan almannavarnanefnda

    Mál 1809171 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga bæjarstjóra þess efnis að almannavarnanefndir Suður, og Norður-Múlasýslu verði sameinaðar í eina almannavarnanefnd í umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingu bæjarstjórnar.

  5. 5. Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2018

    Mál 1809167 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð ársfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum verður haldinn föstudaginn 12. október nk. kl. 12:15 á Hilton Reykjavík Nordica.

    Bæjarráð felur Eydísi Ásbjörnsdóttur að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  6. 6. Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

    Mál 1809166 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica kl. 12:15 Bæjarráð felur Karli Óttari Péturssyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  7. 7. Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2018

    Mál 1809165 Allur ferill málsins

    Framlag aðalfundarboð Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 10. október nk. kl 15:00 á Hótel Nordica.

    Bæjarráð felur Karli Óttari Péturssyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum

  8. 8. Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2018

    Mál 1809158 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 10. október 2018 á Hilton Nordica Reykjavík kl. 16:00. Bæjarráð felur Karli Óttari Péturssyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  9. 9. Götulýsing - Rarik

    Mál 1803100 Allur ferill málsins

    Vegna ábendinga er beint til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar að ítreka við Rarik að án tafar verði farið í vinnu við að skipta út perum í gatnalýsingu í ljósastaurum í sveitarfélaginu að undanskildum Reyðarfirði þar sem Rafveita Reyðarfjarðar sér um peruskipti.

    Jafnframt leggur bæjarráð til við eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að fara í alvarlega skoðun á "LED" lýsingu gatnakerfisins í sveitarfélaginu.

  10. 10. Æfingaraðstaða slökkviliðs

    Mál 1810006 Allur ferill málsins

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að hefja viðræður við Alcoa Fjarðaál vegna hugsanlegrar æfingaraðstöðu slökkviliðsins á Haga.

  11. 11. Háskólasetur Austfjarða

    Mál 1710150 Allur ferill málsins

    Rætt um háskólasetur á Austurlandi

  12. 12. Félagsmálanefnd - 114

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 114 frá 27. september 2018 lögð fram til umfjöllunar.

  13. 13. Fræðslunefnd - 60

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 60 frá 25. september 2018 lögð fram til umfjöllunar.

  14. 14. Íþrótta- og tómstundanefnd - 52

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 52 frá 25. september lögð fram til umfjöllunar.

  15. 14. Barnaverndarfundagerðir 2018

    Mál 1801097 Allur ferill málsins

    Fundargerð Barnaverndar nr. 89 frá 24. september lögð fram til umfjöllunar.

  16. 15. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr.4 frá 24. september lögð fram til kynningar.

  17. 17. Safnanefnd - 1

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar frá 11. september 2018 lögð fram til umfjöllunar.

    1. 17.5 Stjórn Sjóminjasafns Austurlands.1806162